7.6.2010

Vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál 7. júní 2010

Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, flutti í morgun opnunarávarp á vestnorrænu ráðstefnunni „Staða og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndum“. Hún fjallaði um stöðu íslenskra kvenna í stjórnmálum og lagði áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um þann árangur sem hefur náðst. Forseti Alþingis minnti í þessu samhengi á lög sem nýlega voru samþykkt á Alþingi en þeim er ætlað að tryggja jafnari hlutföll kvenna og karla í áhrifastöðum í hlutafélögum og einkahlutafélögum.

Ráðstefnan er haldin í Þjóðmenningarhúsinu og stendur til kl. 16.30. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.

Hægt er að horfa á beina útsendingu frá ráðstefnunni hér. Dagskrá (pdf).

Á ráðstefnunni fjalla fyrirlesarar frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi um stöðu vestnorrænna kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi. Gerð verður grein fyrir sértækum leiðum til að jafna völd karla og kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi, auk þess sem fjallað verður um kynjaða hagstjórn og jafnréttisuppeldi.

Að loknum erindum verða pallborðsumræður þar sem konur sem eiga sæti á þjóðþingum Vestur-Norðurlanda taka þátt ásamt fleirum.

Nánari upplýsingar veitir: Magnea Marinósdóttir, sérfræðingur, alþjóðadeild Alþingis
Netfang: magneam@althingi.is, sími: 8246407.