25.1.2010

Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 25.-29. janúar

Fyrsti fundur Evrópuráðsþingsins á árinu verður haldinn í Strassborg dagana 25.-29. janúar 2010.

Fundinn sækja fyrir hönd Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins Lilja Mósesdóttir formaður, Steinunn Valdís Óskarsdóttir varaformaður og Birkir Jón Jónsson.

Kosning forseta Evrópuráðsþingsins verður á dagskrá fundarins auk umræðu um m.a. samning Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali og breytingar á kosningalöggjöf til að styrkja stöðu kvenna í stjórnmálum. Frekari upplýsingar um fund Evrópuráðsþingsins er hægt að finna hér.