19.2.2009

Vetrarfundur ÖSE-þingsins 19.-21. febrúar 2009

Vetrarfundur þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) fer fram dagana 19.-21. febrúar í Vínarborg í Austurríki.

Einar Már Sigurðarson, formaður Íslandsdeildar, og Pétur H. Blöndal varaformaður sækja fundinn fyrir hönd Íslandsdeildar ÖSE-þingsins.

Málefnanefndir þingsins koma saman á fundinum og þingmenn hitta m.a. fastafulltrúa og embættismenn á vegum ÖSE. Sérstök umræða verður um tillögur að nýrri skipan öryggismála í Evrópu.

Pétur H. Blöndal hefur frá árinu 2006 verið fulltrúi ÖSE-þingsins í fjárreiðum ÖSE og mun hann leggja fram stöðuskýrslu um verkefni sín.