1.12.2014

Fundur Evrópunefnda þjóðþinga ESB (COSAC) 

Fulltrúar Evrópunefnda þjóðþinga ESB-ríkjanna, umsóknarríkja og Evrópuþingsins koma saman til fundar í Róm 30. nóvember - 2. desember. 

Helstu dagskrárefni fundarins eru staða mála undir formennsku Ítala í ráði ESB, staða þjóðþinga innan sambandsins eftir gildistöku Lissabon-sáttmálans og stefnumörkun ESB sem hefur að markmiði að stuðla að sjálfbærum hagvexti (Evrópa 2020). 

Af hálfu utanríkismálanefndar munu Birgir Ármannsson og Óttarr Proppé sækja fundinn.