29.10.2007

Forseti Alþingis sækir þing Norðurlandaráðs

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, sækir þing Norðurlandaráðs sem haldið er í Ósló dagana 30. október til 1. nóvember, ásamt öðrum forsetum norrænna þjóðþinga. Í tengslum við þingið mun forseti sitja fund þingforseta og fund þeirra með forsætisnefnd Norðurlandaráðs.