16.3.2018

Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2018–2019

Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2018–2019 

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið 29. ágúst 2018 til 27. ágúst 2019. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 17. apríl næstkomandi. Nánari upplýsingar er að finna á vef Jónshúss

Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnot af íbúðinni, sem er á 2. hæð Jónshúss. Íbúðin er tveggja herbergja og fylgir henni allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður. Afnotin eru endurgjaldslaus en þeim sem fá úthlutað ber þó að greiða fyrir þrif íbúðarinnar og rekstrarkostnað, alls kr. 45.000. 

Dvalartími í íbúðinni fer eftir umfangi verkefnis og öðrum atvikum en er þó venjulega ekki lengri en tveir mánuðir. Úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn. Við úthlutun íbúðarinnar er höfð hliðsjón af eftirfarandi atriðum: 

1. Að umsókn sé vandlega unnin.

2. Að verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi og þyki áhugavert.

3. Að verkefnið verði ekki unnið annars staðar en í Kaupmannahöfn eða nágrenni.

4. Að sem eðlilegust skipting sé milli kynja og fræðigreina. 

Þeir sem eru í námi, þar á meðal doktorsnámi, eiga að jafnaði litla möguleika á úthlutun. Þá er höfð hliðsjón af því hvort sótt er um dvöl í fyrsta skipti en þegar umsækjendur eru jafnsettir skulu þeir ganga fyrir sem sækja um dvöl í fyrsta skipti. 

Úthlutunarnefnd ráðgerir að ljúka störfum í maí. 

Umsóknir um íbúðina skulu vera á sérstöku eyðublaði  sem nálgast má á vef Jónshúss og skulu berast skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 17. apríl nk. 

Umsóknir merkist: 

Umsókn um fræðimannsíbúð

b.t. Jörundur Kristjánsson

Skrifstofu Alþingis

101 Reykjavík.