Í stuttu máli
Greinar
Þingstörf
Þingræður
Um mig
Á Facebook
Senda póst
 
Skráning á póstlista
Í stuttu máli
  Greinar
Netfang:
 


 
Í stuttu máli
15. janúar 2013
Ávarp flutt við upphaf fyrsta þingfundar ársins 2013

Hér er að finna ávarp sem ég flutti við upphaf þingfundar í gær, þar sem ég sagði þingmönnum hug minn varðandi gang þingstarfanna á þessum vetri: Ég óska alþingismönnum gleðilegs árs og einnig starfsmönnum Alþingis og landsmönnum öllum. Það er einlæg von mín að hið nýja ár færi okkur farsæld og frið og að störf Alþingis verði landi og lýð til blessunar. Þó að nú ljúki formlegri frestun þingfunda hefur Alþingi verið að störfum undanfarið. Alþingismenn hafa verið á fundum í þingnefndum og þingflokkum auk þess sem þingmenn hafa sinnt öðrum þeim störfum sem á þeim hvíla og fylgja því að vera kjörnir á Alþingi. Þingfrestun er í raun gömul arfleifð eins og svo margt annað í starfi Alþingis og passar ekki vel við þá þróun sem þessi stofnun er...
| Lesa meira

26. maí 2012
Málfrelsi ráðherra á Alþingi

Í dag svaraði ég Halldóri Blöndal, sem fullyrti á síðum Morgunblaðsins í gær að það hafi verið alvarleg mistök af hálfu forseta Alþingis að gefa forsætisráðherra orðið á þingfundi sl. fimmtudag, því hann hafði tekið inn varamann. Svarið mitt birtist á leiðaraopnu Morgunblaðsins í dag: Það er með blendinni tilfinningu sem ég hugsa til þess að forveri minni á forsetastóli á Alþingi, Halldór Blöndal, sitji yfir sjónvarpsútsendingum frá Alþingi og ergi sig yfir „fundarstjórn forseta“. Ég virði áhuga hans á störfum þingsins en ég held að það sé margt annað hollara fyrir sálina en standa á þessum verði heima. Við á þinginu reynum að fara að þingsköpum í hvívetna. Okkur getur að vísu orðið á en það er sjaldan þjóðarvoði á ferðinni. Forsætisráðherra, sem hefur verið í erindum erlendis undanfarið...
| Lesa meira

19. apríl 2012
Sumarhátíð Jóns í byrjun Hörpu

Sumarið kom í Kaupmannahöfn á okkar séríslenska hátíðisdegi, sumardeginum fyrsta. Gróðurilmur í lofti og hátíðarstemning var við Jónshús þar sem íslenski fáninn blakti við hún, hátíð Jóns Sigurðssonar var að hefjast. Jón og Ingibjörg, húsráðendur, buðu gesti velkomna og hátíðin hófst með ávörpum og söng, við húsfylli. Svavar Gestsson fv sendiherra, ráðherra og þingmaður flutti kraftmikla hátíðarræðu. Íslenski kórinn Staka söng ættjarðarlög, Bryndís Jakobsdóttir söng Vikivaka Valgeirs Guðjónssonar alveg yndislega og lék undir á gítar. Hápunkturinn var afhending Verðlauna Jóns Sigurðssonar sem að þessu sinni komu í hlut Péturs M. Jónassonar eins okkar merkasta vísindamanns, sem skilað hefur ærnu æviverki, merku á heimsvísu.
| Lesa meira

19. apríl 2012
Pétur M. Jónasson var maður dagsins

Hápunkturinn á hátíðinni í Jónshúsi á sumdardaginn fyrsta var að afhenda Pétri, mínum merka og góða vini, verðlaun Jóns Sigurðssonar. Pétur var bekkjar- og stúdentsbróðir föður míns í MR og síðar stóð Einar Örn eiginmaður minn að gerð sjónvarpsþáttar og myndar um Þingvallavatn og stórmekar rannsóknir Péturs á því. Ég hef því fylgst með Pétri og hans merku verkum síðustu áratugi, - þó margt komi mér enn á óvart. Krafturinn i honum nú á tíræðisaldri er ótrúlegur.
| Lesa meira

18. apríl 2012
Merk og söguleg portrett mynda eign Alþingis

Síðast liðinn föstudag afhjúpaði ég málverk af Sólveigu Pétursdóttur, sem var forseti Alþingis 2005 til 2007, eftir Stephen Lárus Stephen. Í ræðu sem ég hélt af því tilefni kom fram að í eigu Alþingis er 51 portrett mynd af fyrrverandi alþingismönnum og langflestar eru af þeim sem gegnt hafa embætti þingforseta. Portrett mynda safn Alþingis er einstakt og merk heimild í listasögu Íslands og spannar rúma öld. Þannig á Alþingi portrett myndir af nær öllum forsetum sameinaðs Alþingis alveg frá árinu 1901 og til ársins 1991, og fjórar portrett myndir hafa verið gerðar af þeim forsetum Alþingis sem gegnt hafa embætti frá 1991. Venja er að nýtt portrett verk sé látið hanga í gamla efrideildarsalnum í eitt ár frá því að það er afhjúpað. Ræðuna sem ég flutti er að finna í heild sinni hér:
| Lesa meira

Nýjustu þingmálin
 ● 700. skipulags- og mannvirkjamál á Alþingissvæðinu (yfirstjórn og framkvæmd)
 ● 567. 100 ára afmæli kosningarréttar íslenskra kvenna 19. júní 2015
 ● 416. rannsóknarnefndir (skipun nefndar, kostnaður við gagnaöflun og skaðleysi nefndarmanna)
 ● 3. tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá Íslands
 ● 891. prófessorsstaða tengd nafni Jóns Sigurðssonar forseta
 ● 596. þingsköp Alþingis (nefndaskipan, eftirlitshlutverk Alþingis o.fl.)
 ● 348. rannsóknarnefndir (heildarlög)
 ● 686. þingsköp Alþingis (eftirlitshlutverk Alþingis, þingnefndir o.fl.)
 ● 595. ákærur vegna atburða í og við Alþingishúsið 8. desember 2008
 ● 286. rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 (skilafrestur skýrslu, meðferð á Alþingi o.fl.)

 

 


 

Í stuttu máli


Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir | Austurstræti 14 | sími: 563 0700 | fax: 563 0730 |