Fimmtudagur 12. maí 2005
Ingibjörg Sólrún - alla leið


Fjallað um formannskjörið í Samfylkingunni í grein í Morgunblaðinu laugardaginn 7. maí

Nú eru atkvæðaseðlar í formannskjörinu komnir heim til Samfylkingarfólks um allt land.

Mikilvægt er að við veljum þann frambjóðanda sem getur komið okkur í ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Ég treysti Ingibjörgu Sólrúnu til þess og til að verða næsti forsætisráðherra á Íslandi.

Báðir frambjóðendur til formanns hafa margt til síns ágætis. Össur hefur unnið gott frumkvöðulsstarf sem formaður fyrstu árin ásamt þeim mörgu sem lögðu hönd á plóginn til að gera Samfylkinguna að þeim flokki sem hún er í dag. Hann hefur sjálfur sagt að hann líti á Ingibjörgu Sólrúnu sem framtíðarleiðtoga flokksins og sem slík var hún forsætisráðherraefni okkar jafnaðarmanna í síðustu Alþingiskosningum þar sem Samfylkingin vann góðan sigur. Undir þá skoðun hans tek ég heilshugar og nú er tækifærið til að láta það verða að veruleika.

Tími til að breyta
Ingibjörg Sólrún er hæfileikaríkur forystumaður og ferst vel úr hendi að leiða saman fólk úr ólíkum áttum eins og sýndi sig í borgarstjóratíð hennar. Þar leiddi hún farsællega samstarf þriggja flokka í Reykjavíkurlistanum, sem sigraði örugglega í þrígang í kosningum í borginni.

Það er komin þreyta í stjórnmálin og krafa um breytt vinnubrögð verður æ sterkari. Ingibjörg Sólrún hefur sýnt í verki að hún vill kalla sem flesta til samráðs við stefnumótun og ákvarðanir. Um það ber vönduð vinna í framtíðarnefndinni vitni, en ég tók þátt í starfi hennar ásamt fjölda annarra flokksmanna. Ingibjörg Sólrún er lýðræðislegur og heiðarlegur stjórnmálamaður, sem á mikið erindi í forystu landsmálanna.

Samfélag lífsgæða, jöfnuðar og réttlætis
Húsfyllir var á glæsilegum baráttufundi stuðningsmanna Ingibjargar Sólrúnar í Borgarleikhúsinu sl. miðvikudagskvöld. Þar sagði hún m.a.:

"Ríkisstjórnin hefur skapað hér samfélag valdstjórnar og misskiptingar. Hún hefur klúðrað því tækifæri sem hún hafði til að takast á við nauðsynlegar breytingar á velferðarkerfinu, menntakerfinu og atvinnulífinu. Breytingar sem hefðu getað skapað hér þróttmikið samfélag almennra lífsgæða, jöfnuðar og jafnréttis. Á tímum góðæris og hagvaxtar er lag til að takast á við slíka hluti – þá er hægt að nota auðlegðina til að skapa víðtæka sátt um nauðsynlegar kerfisbreytingar. Búa í haginn fyrir framtíðina og finna lausnir sem taka mið af þörfum fjölskyldnanna fyrir þjónustu og létta þeim lífið, jafna lífeyrisréttindi landsmanna, renna styrkari stoðum undir almannatryggingar, skapa nýjar leiðir í menntakerfinu og sátt í umhverfismálum. Til þess hefur ríkisstjórnin hvorki haft þrek né vilja."

Samfylkingarfólk og aðrir jafnaðarmenn geta tekið undir þessi orð Ingibjargar Sólrúnar og einnig þá framtíðarsýn sem fram kom í máli hennar á fundinum, - að við ættum óhikað að nota hvert tækifæri til að skapa samstöðu um fyrirmyndarsamfélag á Íslandi þar sem félagslegu misrétti er úthýst og atorka og sköpunarkraftur einstaklinganna fær notið sín. Samfélag þar sem við erum ábyrg bæði gagnvart okkur sjálfum og hvert gagnvart öðru.

Kæru flokksmenn, nýtið atkvæðisréttinn í formannskosningunni sem nú stendur yfir og komið atkvæðum ykkar tímanlega til skila.
Það er kominn tími til að breyta, - gerum Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að formanni Samfylkingarinnar.

---------------------------------------------------------------

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.

---------------------------------------------------------------

Útdregið:

Ingibjörg Sólrún er lýðræðislegur og heiðarlegur stjórnmálamaður, sem á mikið erindi í forystu landsmálanna.

Athugasemd
Senda athugasemd
Nafn:


Netfang:


Veffang:


Athugasemdir:


Geyma persónuupplýsingar?