Fimmtudagur 20. ágúst 2009
Framkvæmdir Alþingis raska ekki fornleifarannsóknum.

Mjög merkar minjar frá landsnámstíð hafa komið í ljós á Alþingisreitnum en þar hefur verið unnið að viðamiklum fornleifarannsóknum í rúmt ár á vegum Alþingis.

Í Morgunblaðinu síðasta sunnudag birtist fréttaskýring og umfjöllun sem mætti skilja sem svo að fyrirhugaðar framkvæmdir á Alþingisreitnum ógni á einhvern hátt þessum fornleifarannsóknum og að jafnframt ríki óvissa um varðveislu þeirra minja sem fundist hafa. Slíku er alls ekki til að dreifa enda hefur gott samstarf og skilningur ríkt um rannsóknir á reitnum milli Alþingis og Fornleifaverndar ríkisins og þeirra sem vinna við fornleifauppgröftinn.

Fornleifauppgröfturinn hefur verið á vesturhluta Alþingisreitsins og m.a. á því svæði sem fyrirhugað er að reisa nýbyggingu og bílakjallara fyrir Alþingi. Við þennan uppgröft hafa komið í ljós veigameiri fornleifar en menn áttu von á þegar af stað var farið.

Það er því ljóst að þetta svæði þarf að rannsaka mun betur en hægt er innan ramma þess samnings sem núverandi uppgröftur tekur mið af en honum lýkur 31. okt. nk. Þá er einnig hugsanlegt að þessar rannsóknir kalli á uppgröft út fyrir mörk Alþingisreitsins. Að hálfu allra er að málinu koma er nú unnið að því að finna heppilegt fyrirkomulag á því að varðveita þær fornminjar sem í ljós hafa komið á reitnum þar til fjárveiting hefur fengist til frekari rannsókna og úrvinnslu fornminja.

Nýbyggingar ekki teikniborðinu

Alþingi hefur engar áætlanir uppi nú um stundir um að hefjast handa við byggingu nýs húsnæðis á Alþingisreitnum og frestað hefur verið við fyrirhugaðri samkeppni arkitekta um það. Ljúka þarf fyrst öllum fornleifarannsóknum og þegar þeim er lokið er fyrst forsenda til þess að taka ákvarðanir um framhald málsins.

Það gildir hins vegar það sama um frekari forleifarannsóknir og byggingaframkvæmdir að mikil óvissa er um fjármögnun slíkra verkefna í þeim þrengingum sem ríkissjóður býr nú við og kalla á niðurskurð útgjalda á flestum sviðum.

Til viðbótar nýbyggingu, sem nú frestast, hefur staðið til að ljúka endurgerð eldri húsa Alþingis á Alþingisreitnum. Sú vinna felst í því að húsið Skjaldbreið við Kirkjustræti 8 verður endurgert og að Skúlahús, sem stendur við Vonarstræti 12, verði flutt yfir á Kirkjustræti við hlið Skjaldbreiðar.

Með því væri komin mjög heilstæð götumynd af endurgerðum eldri húsum eftir öllu Kirkjustræti sem kallaðist á við velheppnaða endurgerð húsa á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Það auða svæði á horni Kirkjustrætis og Tjarnargötu, sem fyrirhugað er að flytja Skúlahús á, hefur þegar verið vandlega rannsakað af fornleifafræðingum á umliðnu ári og er unnið að varðveislu fornminja sem þar hafa fundist í nýjum kjallara sem reistur verður undir Skúlahúsi.

Kjallarinn verður þannig úr garði gerður að hann megi opna og tengja til suðurs á svæðinu þar sem vitað er að fornleifar eru undir. Þá er gert ráð fyrir sérstakri sýningaraðstöðu í kjallaranum, sem tengja megi við sýningu annarra fornleifa í kring.

Fornleifavernd ríkisins og þeir fornleifafræðingar sem unnið hafa að rannsóknum á svæðinu telja slíkt góða lausn, ekki síst þar sem þess verður gætt að engar minjar glatist undir veggjum kjallarans. Við flutning Skúlahúss skapast auk þess tækifæri fyrir fornleifafræðinga síðar meir til að að rannsaka það svæði við Vonarstræti þar sem Skúlahús stendur nú.

Mikið gildi fyrir Alþingi

Mín skoðun er sú að það hafi mikið gildi fyrir Alþingi að góð sýningaraðstaða verði á Alþingisreitnum fyrir þær minjar sem finnast á svæðinu. Ég vil minna á hversu vel hefur tekist til með slíka varðveislu í Danmörku, en rústir af kastala Absalon biskups, stofnanda Kaupmannahafnar, eru að finna undir danska þinghúsinu í Kristjánsborgarhöll.

Þá má einnig nefna að þegar Þjóðverjar endurnýjuðu og breyttu þinghúsinu í Berlín við sameiningu landsins var þess gætt að ýmsar húsminjar frá stríðsárunum væru varðveittar og sýnilegar öllum sem þar eiga leið um. Það er í þessum anda sem ég tel að Alþingi hljóti að nálgast það viðfangsefni hvernig taka skuli á varðveislu fornminja á Alþingisreitnum.


Höfundur er forseti Alþingis.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 20. ágúst 2009