Föstudagur 24. apríl 2009
Stærsta velferðarmálið er aðild að ESB

EITT brýnasta verkefnið framundan er að koma atvinnulífinu í gang að nýju. Það er forsenda þess að við tryggjum velferðarsamfélag í anda jafnaðarstefnunnar. Mikið atvinnuleysi er veruleiki sem hefur verið fjarri okkur Íslendingum um langt skeið. Í mars var atvinnuleysi að meðaltali 8,9% en aðeins 1% á sama tíma í fyrra. Nú eru tæplega 18.000 manns skráðir án atvinnu, af þeim eru reyndar um 3.300 í hlutastarfi. Þetta er minna en spá Vinnumálastofnunar fyrir áramótin gerði ráð fyrir, en hún spáði að allt að 20.000 yrðu skráðir án vinnu í apríl-maí. Það er einnig jákvætt að lausum störfum hefur fjölgað töluvert hjá vinnumiðlunum að undanförnu. Í lok mars voru skráð um 620 laus störf en þau voru um 420 í febrúar. Reyndar er gert ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í mörgum atvinnugreinum, einkum í verslun og þjónustu. Þó mun draga úr atvinnuleysi í byggingariðnaði og ferðaþjónustu yfir sumartímann. Vinnumálastofnun telur að atvinnuleysi aukist í maí þegar námsmenn koma út á vinnumarkaðinn en fari minnkandi í júní og fram í september.
Með aðildarviðræðum við ESB munu hjól atvinnulífsins fara að snúast á ný. Tiltrú erlendra aðila á íslenskum fyrirtækjum mun endurnýjast og unnt verður að afnema gjaldeyrishöftin. Starfsemi fyrirtækja mun í kjölfarið eflast og störfum fjölga til hagsbóta fyrir heimilin. Við í Samfylkingunni leggjum megináherslu á að teknar verði upp aðildarviðræður við ESB strax eftir kosningar. Það getur ráðið úrslitum um stöðu íslensks samfélags næstu árin.

Uppbyggileg verkefni mikilvæg fyrir fólk án atvinnu

Hlutverk stjórnvalda er að finna leiðir til að styðja við bakið á einstaklingum og fjölskyldum sem harðast verða fyrir barðinu á efnahagsástandinu vegna atvinnuleysis, greiðsluvanda og margvíslegra erfiðleika sem eru fylgifiskar þess. Allir kostir sem gera fólki kleift að halda tengslum við vinnumarkaðinn eru mikilvægir, eins og hlutabætur á móti minnkuðu starfshlutfalli. Lagaheimild um greiðslu þeirra hefur reynst mjög mikilvæg aðgerð til að sporna við atvinnuleysi. Aðgerðir sem hvetja og styðja fólk án atvinnu til að byggja sig upp og efla kunnáttu sína og færni fyrir þátttöku á vinnumarkaði þegar úr rætist eru nauðsynlegar. Allt sem er gert til að hjálpa fólki að halda virkni sinni og skapa sér tilgang með athöfnum sínum frá degi til dags er ómetanlegt.
Vinnumálastofnun hefur lagt kapp á að virkja og byggja upp leiðir fyrir fólk án atvinnu til að fást við verðug og uppbyggileg verkefni. Þar má nefna starfsþjálfunarsamninga og samninga um reynsluráðningar, fjölbreytt framboð náms til að styrkja fólk á vinnumarkaði, atvinnutengda endurhæfingu, samninga um þróun viðskiptahugmynda og frumkvöðlasamninga sem er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Eins ber að nefna samvinnu Vinnumálastofnunar og atvinnulífsins um ýmsar leiðir til átaksverkefna.

Krónan heftir atvinnulífið

Verkefni stjórnvalda hafa verið ærin. Við í ríkisstjórninni höfum á 80 dögum unnið hörðum höndum að því að vinna okkur út úr vandanum og höfum hrint í framkvæmd nánast öllum atriðunum í verkefnaskrá okkar. Við höfum með ýmsum aðgerðum náð góðum árangri en betur má ef duga skal. Verkefnin næstu misserin eru margþætt og stór. Með aðildarviðræðum við ESB skapast efnahagslegar aðstæður sem hleypa krafti í atvinnulífið á nýjan leik, fjölga störfum og tryggja heimilum í landinu örugga afkomu. Núverandi efnahagsástand er að sliga samfélagið enda er staða gjaldmiðilsins afleit, verðlag er hátt, kaupmáttur fer rýrnandi og vextir eru háir. Krónan dugar ekki, hún heftir atvinnulífið. Stærsta og viðamesta verkefnið eftir kosningar er að koma þjóðinni út úr þessum aðstæðum.

Jóhanna þarf skýlaust umboð til forystu

Nú er brýnt að ganga hreint og ákveðið til verks. Samningur við ESB er stærsta velferðarmál þjóðarinnar og við í Samfylkingunni leggjum áherslu á að fara í aðildarviðræður við ESB strax eftir kosningar. Þannig má leggja grunninn að því að koma okkur út úr vandanum hratt og örugglega. Jóhanna Sigurðardóttir þarf skýlaust umboð til að leiða næstu ríkisstjórn og byggja upp vinnu og velferð með traustri efnahagsstjórn og samningum við ESB um aðild og upptöku evru. Með hana í fararbroddi munum við jafnaðarmenn setja aðildarviðræður í forgang. Kjósendur geta treyst því.