Þriðjudagur 27. desember 2011
Opnir nefndafundir Alþingis – aukið gegnsæi í þingstörfum
Í sumar voru gerðar margvíslegar breytingar á þingskaparlögum í því skyni að styrkja eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu. Einn liður í þessum breytingum voru ákvæði um opna upplýsingafundi nefnda. Hlutverk slíkra funda er að vera vettvangur fyrir samræðu þingnefndar við aðila utan hennar þar sem nefndarmenn geta leitað upplýsinga eða skýringa á tilteknum málum fyrir opnum tjöldum. Þessir upplýsingafundir eru tvenns konar. Annars vegar eru fundir sem eru opnir almenningi og fréttamönnum, sem er jafnframt sjónvarpað beint og sendir út á vef Alþingis. Hins vegar eru upplýsingafundir sem ekki eru sendir út en eru opnir fyrir fréttamönnum.
Með lagaákvæði um opna upplýsingafundi þingnefnda er ekki aðeins verið að auka aðhald þingsins með störfum ríkisstjórnar og stjórnsýslu hennar heldur er einnig verið að auka gegnsæi í störfum Alþingis og gefa fjölmiðlum og almenningi betra tækifæri til að fylgjast með störfum þingsins. Opnir upplýsingafundir sem eru sendir út eru í eðli sínu sambærilegri við „yfirheyrslufundi“ (e. hearings, n. hörings) í öðrum þingum.
Frá því að þing var sett 1. okt. sl. hafa fastanefndir Alþingis haldið 23 opna nefndafundi. Þrettán þessara funda hefur bæði verið sjónvarpað og þeir sendir út á vef Alþingis og tíu hafa verið opnir fréttamönnum en ekki sendir út. Þeir sem ekki hafa tök á því að fylgjast með beinum útsendingum frá nefndafundum eiga þess kost að sjá þessa fundi með því að fara á vef Alþingis þar sem upptaka af fundunum er varðveitt á vefslóðinni http://www.althingi.is/vefur/opnirnefndarfundir.html.
Forsætisnefnd Alþingis setti árið 2008 reglur um opna fundi nefnda og á þeim grundvelli voru haldnir 13 opnir nefndafundir á þriggja ára tímabili 2008-2011 eða að jafnaði fjórir á ári. Ljóst er hins vegar að skýr lagaákvæði um opna nefndafundi frá því í sumar hafa orðið þingmönnum mikill hvati til að halda slíka fundi eins og sést á þeim fjölda funda sem haldnir hafa verið á tveggja mánaða tímabili þetta haust.
Fréttablaðið, þriðjudaginn 27. desember 2011.