Laugardagur 26. mars 2005
Hreyfing - valkostur í heilbrigðisþjónustunni
Undanfarin ár hafa nágrannaþjóðir okkar á Norðurlöndum boðið hreyfingu sem valkost í meðferð og heilsueflingu í heilbrigðisþjónustu sinni. Þessi leið hefur gefist vel og í upplýsingum frá Danmörku kemur fram að þessi leið hefur gagnast best sem meðferð við æða-, stoðkerfis-, efnaskipta-, lungna- og geðsjúkdómum. Rannsóknir sýna að þetta er raunhæfur kostur en læknar verða að meta í hverju tilfelli hvort þessi leið á við viðkomandi sjúkling, því ekki er hægt að alhæfa um það að hreyfing eigi við alla. Í erindi sem Ingibjörg Jónsdóttir lífeðlisfræðingur hélt á ráðstefnu Hugarafls í vikunni kom fram að rannsóknir sýndu að hreyfing hefði áhrif á sömu boðefni líkamans og ýmis lyf svo sem væg geðlyf. Nú liggur fyrir Alþingi tillaga mín og þingmanna úr öllum flokkum um að heilbrigðisráðherra undirbúi það að hreyfing geti orðið valkostur í heilbrigðisþjónustu, sem lækning og í fyrirbyggjandi tilgangi, þannig að læknar geti vísað á hreyfingu á sama hátt og á lyf eða læknisaðgerðir. Til þess að hægt sé að vísa á hreyfingaráætlanir þurfa þær að vera fyrir hendi. Við leggum því til að það verði metið hvort setja þurfi á laggirnar nám eða endurmenntun fyrir þá sem muni hafa umsjón með hreyfingar-¬, lífsstíls-¬ eða þjálfunaráætlunum.
MEIRA...
Miðvikudagur 16. mars 2005
Æ sér gjöf til gjalda
Mikil umræða um tengsl lækna og lyfjafyrirtækja fór fram í kjölfar svars heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni um umfang slíkra boðsferða. Oft hefur verið bent á óeðlilega markaðssetningu lyfja gagnvart læknum. Læknasamtök og lyfjaframleiðendur hafa brugðist hinir verstu við þegar umræða hefur orðið um þessi mál opinberlega og jafnvel neitað að veita upplýsingar um samskiptin. Nú hafa þessir aðilar viðurkennt að samskiptin þurfi að vera uppi á borðinu og nauðsyn reglna um þau. Því fagna ég.
MEIRA...