![]() |
|
Fimmtudagur 14. júlí 2005
Ertu fréttaefni morgundagsins?
- umferðarslys kosta 14-18 milljarða á ári Nú fer í hönd einn mesti ferðatími ársins. Mjög margir ferðast um landið í júlí og ágúst og þá eykst hættan á vegum landsins, sem ekki eru allir gerðir til að taka við þeirra miklu umferð sem um þá fer á mestu álagstímunum, sérstaklega eftir að allir vöruflutningar og þungaflutningar færðust á vegina. Spurningin hér að ofan er ein af spurningum Umferðarstofu til ökumanna á vegum landsins í sumar. Verið er að auka eftirlit með ökumönnum og auka löggæslu. Hvatningar- og varnaðarorð eru hengd á borða á fjölförnum leiðum. Þetta er ágætis viðleitni en það þarf meira til sporna við umferðarslysum. Við verðum að beita öllum ráðum til að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur í fækkun umferðarslysa. MEIRA... |