![]() |
|
Föstudagur 31. mars 2006
Öldrunarþjónusta í uppnámi
Í fyrradag greip ófaglært starfsfólk á átta hjúkrunarheimilum til aðgerða til að vekja athygli á kröfum sínum um bætt launakjör og hátt í 900 manns tóku þátt í aðgerðunum. Starfsfólkið fer fram á sambærileg kjör og fólk hefur í sambærilegum störfum hjá Reykjavíkurborg. Laun þessara starfsmanna eru frá 105 þús. kr. til 130 þús. kr. á mánuði fyrir skatt. Starfsfólk Reykjavíkurborgar í sambærilegum störfum er með 22 þús. kr. til 25 þús. kr. hærri laun. Aldraðir á hjúkrunarheimilum fengu mjög skerta þjónustu í einn dag, en aðgerðir eru boðaðar í tvo daga í næstu viku. Það er dýrt að greiða lág laun fyrir þessi umönnunarstörf. Það er kostnaðarsamt að setja stöðugt nýtt fólk inn í störfin og nú fæst varla fólk í þau vegna lágra launa. Þeir sem sinna umönnun aldraðra eru ekki síður dýrmætt starfsfólk en t.d. læknar eða aðrar hjúkrunarstéttir, því án þeirra er ekki hægt að veita öldruðum hjúkrunarsjúklingum nauðsynlega þjónustu. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar ætla ekki að taka á þessu máli, þannig að komið verði í veg fyrir ófremdarástand í öldrunarþjónustunni. Það kom fram í umræðunni á Alþingi um málið í gær. Þar benti hver á annan. Ekki er hægt að bæta kjörin nema endurskoða þjónustusamningana við hjúkrunarheimilin og án þess er rekstur heimilanna í algeru uppnámi og óvissu. MEIRA... Fimmtudagur 02. mars 2006
Engin deild fyrir aldraða með geðsjúkdóma
Fólk með geðsjúkdóma eldist eins og aðrir og fær öldrunarsjúkdóma ekki síður en annað fólk. Aldraðir geta líka fengið geðsjúkdóma á efri árum. Engin sérstök deild er til hér á landi fyrir aldraða geðsjúka, en sá hópur þarf mjög sérhæfða þjónustu. Þeir hafa verið vistaðir á geðsviði Landspítala – háskólasjúkrahúss og á öldrunarsviði sama spítala. Þessir sjúklingar hafa verið að velkjast á milli þessara deilda. Þetta eru oft sjúklingar sem eiga ekki samleið með öðrum öldruðum og það gerir það einnig að verkum að hjúkrunarheimilin veigra sér við að taka við þeim þegar læknismeðferð er lokið. Þeir hafa verið teknir inn á heimilin til bráðabirgða til að sjá hvernig gengur. En oftast hefur það því miður ekki gengið. Einhverjir þessara sjúklinga eru langveikir og dvelja heima með göngudeildarþjónustu frá geðsviði, sem er gott á meðan það er hægt. En þegar þeir verða veikari eru þeir lagðir inn, annað hvort á geðdeildina og taka þá upp endurhæfingarpláss, eða þeir lenda inni á öldrunardeildum vegna þess að oft hrjá þá ýmsir aðrir sjúkdómar, oft margir líkamlegir kvillar. MEIRA... |