Forsíða
Í stuttu máli
Greinar
Þingstörf
Þingræður
Um mig
 
Senda póst
 
Skráning á póstlista
Í stuttu máli
  Greinar
Netfang:
 


 
Í stuttu máli
Þriðjudagur 24. janúar 2012

Skyldur þingforseta og sjálfstæði Alþingis
Forseti Alþingis þarf að fara að lögum. Hann lætur ekki efnislega afstöðu sína – né annarra – ráða störfum sínum. Í átökum á Alþingi þarf forsetinn að vera sanngjarn og réttsýnn, taka tillit til allra sjónarmiða og miðla málum. Mér finnst það leggja miklar skyldur á mínar herðar að hafa fengið við kosningu í embættið nær einróma stuðning allra þingmanna, 59 atkvæði. Þegar „landsdómsmálið" kom fram fyrir jól kannaði ég hvort unnt væri að verða við beiðni flutningsmanns um að setja málið strax á dagskrá. Um það var ekki samkomulag. Eftir frekara samráð varð niðurstaða mín að til þess að halda starfsáætlun og ljúka þingstörfum með samkomulagi væri eina ráðið að taka málið á dagskrá, þó ekki fyrr en þing kæmi saman í janúar. Fyrir svona málamiðlun eru mörg fordæmi....
MEIRA...

Þriðjudagur 27. desember 2011

Opnir nefndafundir Alþingis – aukið gegnsæi í þingstörfum
Í sumar voru gerðar margvíslegar breytingar á þingskaparlögum í því skyni að styrkja eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu. Einn liður í þessum breytingum voru ákvæði um opna upplýsingafundi nefnda. Hlutverk slíkra funda er að vera vettvangur fyrir samræðu þingnefndar við aðila utan hennar þar sem nefndarmenn geta leitað upplýsinga eða skýringa á tilteknum málum fyrir opnum tjöldum. Þessir upplýsingafundir eru tvenns konar. Annars vegar eru fundir sem eru opnir almenningi og fréttamönnum, sem er jafnframt sjónvarpað beint og sendir út á vef Alþingis. Hins vegar eru upplýsingafundir sem ekki eru sendir út en eru opnir fyrir fréttamönnum. Með lagaákvæði um opna upplýsingafundi þingnefnda er ekki aðeins verið að auka aðhald þingsins með störfum ríkisstjórnar og stjórnsýslu hennar heldur er einnig verið að auka gegnsæi í störfum Alþingis og gefa fjölmiðlum og...
MEIRA...

Föstudagur 28. október 2011

Nýjung à Alþingi í dag - Útbýting þingskjala á vefnum
Í kjölfar nýrra þingskapa verða margar nýjungar í störfum Alþingis á þessum vetri. Í dag, föstudag, verður í fyrsta sinn útbýtt þingskjölum á vef þingsins á milli þingfunda. Þetta var samþykkt með breytingum á þingsköpum í júní. Telst útbýting þingskjala á vef þingsins jafngilda útbýtingu á þingfundi. Hingað til hefur skjölum aðeins verið útbýtt á þingfundi. Breytingarnar munu hafa í för með sér mikla vinnuhagræðingu.
MEIRA...

Fimmtudagur 13. október 2011

Opnun málþings í tilefni af útgáfu bókarinnar Þingræði á Íslandi: Samtíð og saga.
Tilurð þessarar bókar er að í tilefni af 100 ára afmæli þingræðis á Íslandi árið 2004 ákvað forsætisnefnd Alþingis síðla árs 2005 að standa að ritun bókar um þingræði á Íslandi í 100 ár. Ritstjórn verksins var svo skipuð í desember það ár. Í henni tóku sæti Helgi Skúli Kjartansson, prófessor í sagnfræði, Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor og Þorsteinn Magnússon, stjórnmálafræðingur og aðstoðarskrifstofustjóri á Alþingi. Í samþykkt forsætisnefndar um ritun bókarinnar var lögð áhersla á að efnistök miðuðust við að bókin yrði heildstætt verk þar sem gerð yrði grein fyrir uppruna, eðli og inntaki þingræðisreglunnar, sögu hennar og þróun á Íslandi og fjallað yrði um framkvæmd reglunnar í stjórnmálasögu síðustu 100 ára. Þá var í samþykktinni kveðið á um að ritnefndinni væri ætlað að leggja sjálf fram skerf til ritunar bókarinnar,...
MEIRA...

Sunnudagur 19. júní 2011

Vigdísi Finnbogadóttur afhent verðlaun Jóns Sigurðssonar
Forsætisráðherra, fv. forseti Íslands, sendiherra og aðrir góðir gestir. Við erum hér samankomin í fjórða sinn til að fagna Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi. Hátíðin hefur fram til þessa verið haldin á sumardaginn fyrsta, en að þessu sinni þótti fara betur að halda hana nær lýðveldisdeginum, er við fögnum 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar. Vegna ýmissa viðburða á Íslandi í tengslum við 200 ára afmælið átti hvorki ég, né forsætisráðherra, heimangengt á 17. júní. En mér finnst aftur á móti einkar ánægjulegt að hátíðin skuli haldin í dag; á sjálfan kvenréttindadaginn 19. júní. Ótalmargt hefur þróast til betri vegar í réttindum kvenna, frá þeim tíma er Jón Sigurðsson háði baráttu sína fyrir auknu sjálfræði Íslands og endurreisn Alþingis, þótt baráttan hafi löngum sótts seint. 43% þingmanna eru nú konur og...
MEIRA...

 


 

Flokkað efni

Eldra efni

 

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir | Austurstræti 14 | sími: 563 0700 | fax: 563 0730 |