Mánudagur 31. ágúst 2009
Vinabragð þings Litháa

Það var ánægjulegt á þingforsetafundinum í Osló, nákvæmlega 18 árum upp á dag eftir að við Íslendingar viðurkenndum fyrstir þjóða sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna þriggja, afhenti Arūnas Valinskas, forseti Litháíska þingsins mér við frumskjal ályktunar litháíska þingsins.
Ályktunin var samþykkt 23. júlí, í henni er skorað á þjóðþing og ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna að styðja aðildarumsókn Íslands. Var þetta sannkallað vinabragð þings Litháa, en við viðurkenndum sjálfstæði þeirra þennan sama dag , 26. ágúst 1991. „ Við gleymum aldrei ómetanlegum stuðningi og vináttu ykkar Íslendinga á þessum tímum“ sagði Arūnas Valinskas þingforseti þegar hann færði mér innrammað skjalið. Mér hlýnaði um sannarlega umhjartarætur við þetta tilefni.