Þriðjudagur 01. september 2009
Lengsta sumarþing Alþingis á enda runnið
Þá er þetta lengsta sumarþingi í sögu Alþingis á enda runnið, en sl. föstudag var þingi frestað til 1. október, sem er hefðbundinn þingsetningardagur hvert ár.
Óhætt er að segja að mætt hafi á þingheimi og starfsmönnum Alþingis þetta sumarið og af þingmálum bar hæst þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að ESB og ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinganna. Auk þessara mála urðu 31 frumvarp að lögum og tvær þingsályktunartillögur, sem er mesti málafjöldi sem afgreiddur hefur verið síðan á aukaþinginu sumarið 1931.
Við kosningarnar í vor varð meiri endurnýjun á þingheimi en nokkru sinni í sögu lýðveldisins. Meira en þriðjungur þingmanna tók sæti á Alþingi í fyrsta sinn og einungis þriðjungur þingheims hefur lengri en tveggja ára reynslu af þingstörfum. Það mæddi því mikið á nýjum þingmönnum, auk þess sem ávallt tekur tíma að fóta sig á nýjum vinnustað, ekki síst Alþingi með sínar formlegu reglur og þingsköp. Ég skal ekki leyna því að ég hefði kosið meiri festu á þinghaldinu, einkum í þingsal.
Frammíköll og andsvör
Frammíköll hafa viljað fara úr böndum og nefndi einn þingmaður réttilega við mig að þingmenn hafi ekki kallað frammí heldur gert aðsúg að ræðumönnum. Það er kúnst að kalla framí svo vel fari. Ekki er ætlast til að menn öskri og æpi í þingsalnum, heldur skjóti inn stuttum athugasemdum eða hnyttnum stuttum innskotum.
Andsvör þarf líka að fara yfir með nýliðunum, - þau hafa viljað fara út í „skjall samherja“ eins og forverar mínir kölluðu það. En í þeirra tíð voru þingmenn miskunnarlaust reknir úr ræðustól ef þeir stunduðu slíkt, með bjöllusætti og kröfu um andsvar en ekki skjall.
Á þessu þarf að taka í haust. Yfirbragð þingstarfanna verður að bæta og ég er sannfærð um að þingmenn eru sammála mér um það. Standa verður vörð um virðingu Þingsins svo þjóðin hafi trú á Alþingi . Það er undir þingmönnum sjálfum komið.
Nú verður ekkert septemberþing eins og gert er ráð fyrir í þingsköpunum. Það varð að samkomulagi milli mín, forustu þingsins og ríkisstjórnarinnar í ljósi þessa langa sumarþings að fella að þessu sinni niður septemberfundina. Það þýðir þó ekki að við þingmenn sitjum með hendur í skauti næsta mánuðinn, því fer fjarri.
Ég mun í september, auk varaforseta Alþingis, hefja undirbúning næsta löggjafarþings sem hefst samkvæmt stjórnarskrá 1. október. Þá munum við eiga fund með nefnd um eftirlitshlutverk Alþingis, auk funda með ríkisendurskoðanda og umboðsmanni Alþingis, en báðar þær stofnanir sem þeir fara fyrir heyra undir Alþingi, svo eittthvað sé nefnt.