Sunnudagur 19. júní 2011
Vigdísi Finnbogadóttur afhent verđlaun Jóns Sigurđssonar

Ávarp forseta Alţingis á Hátíđ Jóns Sigurđssonar, í Jónshúsi 19. júní 2011.

Forsćtisráđherra, fv. forseti Íslands, sendiherra og ađrir góđir gestir.
Viđ erum hér samankomin í fjórđa sinn til ađ fagna Hátíđ Jóns Sigurđssonar í Jónshúsi. Hátíđin hefur fram til ţessa veriđ haldin á sumardaginn fyrsta, en ađ ţessu sinni ţótti fara betur ađ halda hana nćr lýđveldisdeginum, er viđ fögnum 200 ára fćđingarafmćli Jóns Sigurđssonar.
Vegna ýmissa viđburđa á Íslandi í tengslum viđ 200 ára afmćliđ átti hvorki ég, né forsćtisráđherra, heimangengt á 17. júní. En mér finnst aftur á móti einkar ánćgjulegt ađ hátíđin skuli haldin í dag; á sjálfan kvenréttindadaginn 19. júní.
Ótalmargt hefur ţróast til betri vegar í réttindum kvenna, frá ţeim tíma er Jón Sigurđsson háđi baráttu sína fyrir auknu sjálfrćđi Íslands og endurreisn Alţingis, ţótt baráttan hafi löngum sótts seint.
43% ţingmanna eru nú konur og er Alţingi ţví í hópi ţeirra fimm ţjóđţinga sem hafa hćst hlutfall kvenna. Einnig má geta ţess ađ allir ţrír handhafar forsetavalds eru nú konur; forseti Alţingis, forsćtisráđherra og forseti hćstaréttar.
Ágćtu hátíđargestir.
Ţađ er mér sönn ánćgja ađ afhenda frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, Verđlaun Jóns Sigurđssonar forseta nú ţegar viđ minnumst 200 ára afmćlis Jóns forseta.
Líkt og fram kom hjá Önnu Agnarsdóttur, formanni úthlutunarnefndar frćđimannsíbúđar Húss Jóns Sigurđssonar, verđskuldar frú Vigdís verđlaunin fyrir margra hluta sakir.
Einnig vil ég ítreka ţau orđ mín ađ hún var okkur konum mikilvćg fyrirmynd, ekki bara á Íslandi heldur einnig víđar um lönd. Ţá vil ég geta ţess ađ Vigdís Finnbogadóttir er á margan hátt frumkvöđull, líkt og Jón Sigurđsson vissulega var.
Einnig hefur frú Vigdísi veriđ treyst fyrir mikilvćgum trúnađarstörfum á erlendri grund. Vil ég einkum nefna störf hennar sem velgjörđarsendiherra Sameinuđu ţjóđanna, bćđi á sviđi tungumála sem og í baráttunni gegn kynţáttafordómum og útlendingahatri.
Ţađ myndi vissulega draga afhendingu verđlauna á langinn ef ég ćtti ađ telja upp öll önnur trúnađarstörf sem frú Vigdísi hafa veriđ falin, auk fjölmargra heiđursdoktorsnafnbóta, svo ég lćt hér stađar numiđ.
Ég óska ţér, kćra Vigdís, innilega til hamingju međ verđskuldađa viđurkenningu á störfum ţínum í anda hugsjóna og starfa Jóns Sigurđssonar og biđ ţig ađ taka viđ verđlaunum Jóns Sigurđssonar forseta áriđ 2011.