Fimmtudagur 08. janúar 2004
Engin vopn í farþegaflugvélar
Bandarísk stjórnvöld hafa farið fram á að vopnaðir verðir verði í flugvélum á leið til Bandaríkjanna. Þetta er liður í baráttu þeirra gegn hryðjuverkum. Þessi rástöfun hefur mætt andstöðu víða og hafa samtök atvinnuflugmanna mótmælt þessu. Það hafa ýmsar þjóðir einnig gert, svo sem Svíar, Danir, Brasilíumenn og fleiri. Samkvæmt fréttum hafa örfá ríki tekið vel í þetta og má þar nefna Ísraelsstjórn. Íslenski dómsmálaráðherrann Björn Bjarnason hefur aftur á móti tekið vel í þetta, sem ætti ekki að koma á óvart í ljósi hrifningar hans á Bandaríkjamönnum og hernaði. Ég er algjörlega andvíg því að færa baráttuna gegn hryðjuverkum upp í háloftin og inn í flugvélarnar á þennan hátt. Það getur skapað meiri hættu fyrir flugfarþega en ella. Þessa baráttu verður að heyja á jörðu niðri, með eftirliti og öryggisráðstöfunum á flugvöllum og ef rökstudd ógn er talin steðja að ákveðnu flugi eða flugferð þá er best að fella hana niður eða fresta þar til menn hafa komist til botns í málinu. Látum ekki draga okkur inn í kosningabaráttu Bush á þennan hátt með öllum þeim afleiðingum sem það getur haft í för með sér.
MEIRA...
Föstudagur 10. október 2003
Tugir milljóna í húfi - ímynd Íslands skaðast
Hvalveiðar okkar í vísindaskyni skaða ímynd Íslands verulega og um leið hagsmuni í ferðaþjónustu og útflutningsgreinum okkar. Um tugmilljóna króna viðskipti getur verið að ræða. Þetta er álit sérfræðinga okkar í ferðaþjónustu og viðskiptalífi sem tengist henni og tek ég heilshugar undir áhyggjur þeirra vegna áframhaldandi hvalveiða. Við höfum varið hundruðum milljóna króna til kynningar á landinu sem hreinu og fögru og er sú ímynd farin að greipa sig í huga fólks um allan heim. Þetta hefur aukið viðskipti við okkur á margan hátt og vakið áhuga á landinu sem spennandi áfangastað. Í vikunni spurði ég samgönguráðherra um áhrif hvalveiða okkar í vísindaskyni á ferðaþjónustu hér á landi, - hvort þau hefðu verið könnuð og hvort hann hygðist bregðast við neikvæðum áhrifum veiðanna á ferðaþjónustuna með einhverjum hætti. Svör ráðherra ollu mér miklum vonbrigðum.
MEIRA...