Miðvikudagur 28. apríl 2004
Varðveitum Hólavallagarð
Þingmál mitt um varðveislu þeirra menningarverðmæta sem felast í Suðurgötukirkjugarðinum, Hólavallagarði er nú til meðferðar í allsherjarnefnd Alþingis. Vel væri við hæfi að samþykkja þessa tillögu mína nú á 100 ára afmæli heimastjórnar í ljósi þess sögulega mikilvægis sem garðurinn gegnir, en þar hvíla ýmsir af helstu baráttumönnum og sjálfstæðishetjum Íslendinga, svo sem Jón Sigurðsson forseti og Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Íslands, auk ýmissa annarra framámanna þjóðarinnar. Þrettán þingmenn úr öllum flokkum flytja málið með mér en við viljum láta vinna að því að tryggja varðveislu og uppbyggingu og kynningu á þeim menningarsögulegu verðmætum sem eru fólgin í kirkjugarðinum við Suðurgötu, Hólavallagarði. Einnig viljum við huga að því að fá hann viðurkenndan sem „Evrópuminjar“ í ljósi þess hve einstakur hann er í Evrópu. Björn Th. Björnsson listfræðingur bendir á í bók sinni Minningarmörk í Hólavallagarði að garðurinn sé „stærsta og elsta minjasafn“ Reykjavíkur, en hann hefur einnig verið skilgreindur sem eitt mesta útiminjasafn landsins.
MEIRA...