Þriðjudagur 26. júlí 2005
Brúðubíllinn lengi lifi!
Undanfarið hefur Brúðubíllinn verið á ferðinni milli róluvallanna í borginni við mikinn fögnuð barna og foreldra, sem sótt hafa þessa skemmtun. Helga Steffensen og samstarfsfólk hennar á miklar þakkir og hrós skilið fyrir að halda þessu bráðskemmtilega brúðuleikhúsi úti. Helga hefur gert það i 25 ár og með því glatt og þroskað kynslóðir barna í borginni og kynnt um leið brúðuleikhúsmenninguna. Ég vona að Brúðubíllinn verði áfram fastur líður í borgarlífinu um ókomin ár. Lítil ömmustelpa fór í þrígang að sjá sýningu brúðubílsins með ömmu og afa á dögunum og hefði vel getað hugsað sér að fara oftar, en nú er brúðubíllinn kominn í frí og heldur út á land svo íbúar þar fái notið skemmtunar Lilla og Ömmu, Garps og Dreka, Töfrahattsins, Þvottapoka og allra hinna skemmtilegu karakteranna. Áfram Helga og félagar! Brúðubíllinn lengi lifi!
MEIRA...
Mánudagur 25. júlí 2005
Andagrátur og mávahlátur
Söngur smáfuglanna hefur varla heyrst í sumar, mávarnir hafa tekið yfir. Tvívegis hef ég komið að mávum þar sem þeir réðust á andamömmu með ungahóp. Andamamman reyndi að verja ungviðið en mátti sín lítils og svo heyrðust angistarvein þegar mávarnir drápu ungana og átu. Þetta gerðist bæði hér við Reykjavíkurtjörn og við Ægissíðugöngustíginn. Í síðustu viku átti ég svo leið um Grasagarðinn í Laugardal í góðviðrinu og minnti ástandið við tjörnina þar á senur í kvikmynd Hitchocks, "Fuglunum". Örfáar endur syntu um og börn hentu til þeirra brauðmolum, en þá komu mávaflokkarnir og réðust á menn og málleysingja, hrifsuðu brauðið og görguðu hástöfum og gerðu ítrekaðar atlögur.
MEIRA...