Mánudagur 19. júní 2006
Jafnaðarkonur mótmæla vændi
Í dag 19. júní er við hæfi að vekja máls á uggvænlegri stöðu fjölda kvenna sem eru fórnarlömb mansals og vændis. Nú þegar HM stendur yfir í Þýskalandi er talið að allt að 100 þúsund konur séu seldar í kynlífsþjónustu. Þetta setur ljótan blett á þessa miklu íþróttahátíð sem heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu er. Kvennasamtök jafnaðarflokkanna á Norðurlöndum hafa á ýmsan hátt vakið athygli á því mikla vændi sem viðgengst á meðan HM stendur yfir og hvatt til að allir taki höndum saman gegn því. Sænsku konurnar létu útbúa fótboltatreyjur í litum sænska landsliðsins í fótbolta með áletruninni FÓTBOLTI : JÁ - VÆNDI : NEI. Þegar þær kynntu átakið í Stokkhólmi í vetur sögðu þær að milli 20 og 30 þúsund konur yrðu fluttar sérstaklega til Þýskalands til að stunda vændi á meðan HM stendur yfir þar. Margar þeirra eru fórnarlömb mansals og koma frá gömlu austantjaldsríkjunum, en þetta nútímaþrælahald er eitt alvarlegasta brot á mannréttindum frá því að þrælasala viðgekkst fyrr á öldum. Dönsku jafnaðarkonurnar létu útbúa kringlótt póstkort eins og fótbolta sem þær senda sem víðast og hvetja alla til að mótmæla mansali og vændinu á HM með því að skrá nafn sitt undir mótmæli á netinu. Kvennasamtök allra jafnaðarflokkanna í Evrópu hófu sambærilega baráttu gegn vændi og mansali á HM og beittu sér sérstaklega á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars í Evrópuþinginu. Síðan voru tugþúsundir undirskrifta með mótmælum gegn ólöglegu mansali og vændi afhentar forráðamönnum Evrópusambandsins og HM í upphafi keppninnar í Þýskalandi. Við Samfylkingarkonur tökum undir með skoðanasystrum okkar á Norðurlöndum og í Evrópu og fordæmum þetta þrælahald.
MEIRA...