Laugardagur 11. nóvember 2006
Störf í dóm kjósenda
Í dag leggjum við þingmenn Samfylkingarinnar í Reykjavík störf okkar í dóm félaga og stuðningsmanna flokksins. Prófkjör er haldið í Þróttarheimilinu í dag, laugardag, frá kl. 10.00 til 18.00. Þar geta þeir kosið sem eru skráðir félagar eða undirrita á kjörstað stuðningsyfirlýsingu við Samfylkinguna. Alþingismenn verða auk almennra þingstarfa að velja sér málaflokka sem þeir þekkja ítarlega og starfa að. Í störfum mínum sem þingmaður hef ég einkum lagt mig eftir hinum flókna heimi almannatrygginga, velferðar- og heilbrigðiskerfis. Þau mál eru ein lykilstoða í stefnu jafnaðarmannaflokka og mikilvægt að þar sé staðið vörð um hagsmuni almennings. Ég vil biðja þá sem telja störf mín mikilvæg fyrir flokk eins og Samfylkinguna og það fólk sem hún vill standa vörð um að hugleiða hvort ekki skipti máli að áfram sé unnið ötullega og af þekkingu í þessum málaflokkum. Ég er tilbúin til þess og sækist eftir því að halda áfram sæti mínu, 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í prófkjörinu í dag.
MEIRA...
Þriðjudagur 31. október 2006
Rýr hlutur kvenna
Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina fengu konurnar í flokknum enn einu sinni slæma útreið. Tvær konur í 9 efstu sætunum getur ekki talist góð útkoma þótt konurnar reyni að bera höfuðið hátt, - flokkurinn hefur 9 þingmenn nú í Reykjavík og litlar líkur eru á að þeim fjölgi. Á fundi um konur í stjórnmálum nýverið sagði Sólveig Pétursdóttir alþingismaður og forseti Alþingis að konurnar í Sjálfstæðisflokknum hefur verið teknar í bakaríið í síðustu kosningum. Nú hefur það endurtekið sig. Þótt þrjár konur séu í 10., 11. og 12. sæti dugar það skammt. Þessar konur verða líklega ekki þingmenn nema einhverjir karlar fyrir ofan þær detti úr skaftinu. Eins og gerðist með Ástu Möller síðast, en hún komst inn á þing þegar Davíð Oddsson hætti, - eða Arnbjörgu Sveinsdóttur, sem komst að þegar Tómas Ingi Olrich hætti. Tvær konur í þessum 9 sætum í Reykjavík þýðir óbreytt ástand.
MEIRA...
Miðvikudagur 13. nóvember 2002
TRAUSTSYFIRLÝSING TIL REYKJAVÍKURÞINGMANNA
Prófkjörum Samfylkingarinnar fyrir Alþingiskosningarnar í vor er nú lokið og fengu þingmenn Samfylkingarinnar í Reykjavík góða kosningu og um leið traustsyfirlýsingu frá flokksmönnum í borginni. Endurnýjunarkrafan sem fjölmiðlar hafa gert sér svo tíðrætt um var ekki krafa kjósenda. Það er nú ljóst. Ég náði því takmarki sem ég setti mér og mun skipa annað sætið í öðru Reykjavíkurkjördæminu.
MEIRA...
Fimmtudagur 24. október 2002
KOSNING Í PRÓFKJÖRI SAMFYKINGARINNAR HAFIN
Kosning í prófkjörinu í Reykjavík er hafin og er hægt að kjósa á skrifstofu Samfylkingarinnar í Austurstræti 14. á 4. hæð. Þeir sem eru erlendis geta fengið kjörgögn send með því að senda póst á samfylking@samfylking.is og gefa upp heimilisfang erlendis, nafn og kennitölu. Kjörseðlar þurfa að berast fyrir 9. nóvember á flokksskrifstofuna áður en kjörfundi líkur þann dag. Þeir sem ekki eiga heimangengt vegna veikinda eða fötlunar eða eru úti á landi geta einnig fegnið gögnin send og kosið heima. Þeir hafi samband við skrifstofuna í síma 551 1660. Ég hvet alla til að taka þátt í prófkjörinu og velja frambjóðendur í Reykjavík í vor.
MEIRA...
Þriðjudagur 22. október 2002
KOSNINGAMIÐSTÖÐ ÁSTU RAGNHEIÐAR OPIN Í PÓSTHÚSSTRÆTI 13
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík verður laugardaginn 9. nóvember næstkomandi. Kosningamiðstöð mín hefur nú verið opnuð í Pósthússtræti 13, jarðhæð, í portinu milli Hótels Borgar og Salatbars Eika. Þar er heitt á könnunni og hvet ég alla sem vilja leggja mér lið í baráttunni að líta inn í kaffi og spjall. Eins og ég hef áður lýst yfir sækist ég eftir stuðningi í 3.-4. sæti á prófkjörslistanum. Prófkjörið verður sameiginlegt fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin og vil ég hvetja alla sem áhuga hafa á að velja frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík til að taka þátt í því. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram í Austurstræti 14 á 4. hæð kl.13 til 17 alla virka daga.
MEIRA...
Miðvikudagur 25. september 2002
Sækist eftir 2. sæti í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu
Nú hefur verið ákveðið að prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum báðum verði haldið 9. nóvember næstkomandi. Ég hef ákveðið að sækjast eftir kjöri í annað sætið í öðru hvoru kjördæmanna. Til þess þarf ég öflugan stuðning í 3.-4. sæti listans. Valið verður á einn lista og munu menn raðast til skiptis milli kjördæma eftir eigin vali og styrk. Formaður flokksins Össur Skarphéðinsson mun að sjálfsögðu leiða annað kjördæmið og tekist verður á um forystuna í hinu. Ég mun ekki blanda mér í þá baráttu en bið um stuðning í annað sæti svo þau gildi jafnaðarstefnunnar sem ég stend fyrir fái öruggan málsvara í Reykjavík. Ég vil fá að fylgja eftir þeim framfaramálum sem ég hef barist fyrir á Alþingi. Þar ber hæst málefni lífeyrisþega, aldraðra og örykja, barna, sjúklinga, námsmanna og svo málefni Reykjavíkur sem hafa verið mér mjög hugleikin, svo dæmi séu tekin.
MEIRA...