Þriðjudagur 04. júlí 2006
Gömlu trixin enn
Kunnugleg er umræðan um niðurskurð í vegamálunum, sem hefur verið undanfarna daga. Í tíð ríkisstjórna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hefur sami leikurinn verið leikinn á hverju kjörtímabili. Tæpu ári fyrir kosningar er gripið til niðurskurðar á vegaframkvæmdum og svo rétt fyrir kosningar er tilkynnt um mikið átak í vegamálum. Þá er afreksmönnunum í ríkisstjórninni, sem komu átakinu á, þakkað af kjósendum með því að kjósa þá aftur til valda og allir þá búnir að gleyma því að nokkrum mánuðum áður höfðu þeir skorið niður þannig að átakið var aðeins fólgið í því að skila til baka því sem var lofað í kosningunum fjórum árum fyrr eða jafnvel aðeins hluta þess. Reyndar var það þannig nú, að niðurskurður á vegafénu sem lofað var fyrir kosningarnar síðustu hófst fljótlega eftir að búið var að kjósa. Þannig höfum við búið við niðurskurð í þrjú ár á þeim kosningaloforðum. Á fjárlögum voru skornir niður 2 milljarðar í tvígang í fyrra og hitteðfyrra, alls 4 milljarðar á tveimur árum. Nú er sami leikurinn enn hafinn, - niðurskurður, átak, niðurskurður, átak….. Þetta er allt saman tóm sýndarmennska til að búa í haginn fyrir stjórnarliðana fyrir kosningabaráttuna næsta vor. Við skulum hafa þetta hugfast með vorinu - og treysta því að almenningur láti ekki plata sig með þessu margnota vegafé eina ferðina enn.
MEIRA...
Fimmtudagur 20. október 2005
Hvernig samgöngur viljum við?
Deilurnar um framtíð Reykjavíkurflugvallar ganga þvert á flokkslínur, óháð því hvar fólk býr á landinu. Samkvæmt síðustu skoðanakönnun vill aðeins fjórðungur landsmanna að miðstöð innanlandsflugs verði flutt frá Reykjavík til Keflavíkur. Á landsbyggðinni var andstaðan mest við flutninginn og á höfuðborgarsvæðinu var einnig meirihluti á móti. Flugsamgöngur eru fljótvirkasti ferðamátinn og því mjög mikilvægar nú þegar tíminn er peningar. Það þarf því einnig að vera stutt á áfangastað frá flugvelli. Ég tel afar ólíklegt að milljörðum verði varið til byggingar nýs innanlandsflugvallar við Reykjavík á sama tíma og nýuppgerður innanlandsflugvöllur er þar fyrir. Hvað þá ef við Íslendingar þurfum að bera allan kostnað af rekstri Keflavíkurflugvallar, eins og stefnir í. Hverfi Reykjavíkurflugvöllur mun innanlandsflugið að öllum líkindum flytjast til Keflavíkur. Það gæti leitt til þess að stór hluti innanlandsflugsins leggist af, vegna þess hve tímafrekt það yrði fyrir farþega að fara á milli höfuðborgarinnar og Keflavíkur.
MEIRA...
Föstudagur 04. febrúar 2005
Reykjavíkurflugvöllur áfram í borginni
Fagna ber breyttri afstöðu Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra til Reykjavíkurflugvallar og framtíðar hans. Skiptar skoðanir hafa verið um framtíð flugvallarins, en ég hef ekki legið á þeirri skoðun minni að höfuðborginni beri að tryggja landsmönnum greiðar samgöngur til og frá borginni og þar með að halda flugvellinum. Stórborgir hafa lagt áherslu á að koma upp flugvöllum inni í miðborgum til að auka aðgengi þangað, samanber City flugvöllinn í London. Þá eru settar strangari reglur um aðflug og flugvélategundir sem heimilt er að lenda á þessum völlum. Reykjavík verður að tryggja að hún standi undir hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna með því halda fluginu og greiðum samgöngum við borgina okkar allra. Borgarstjóri hyggst halda flugvellinum og einnig auka lóðaframboð í Vatnsmýrinni verulega. Það er góð niðurstaða fyrir okkur öll, Reykvíkinga og aðra landsmenn.
MEIRA...
Mánudagur 15. nóvember 2004
Símtöl til Grænlands fokdýr
Símtalið til Grænlands er meira en þrisvar sinnum dýrara en til Svíþjóðar, þó að vegalengdin sé margfalt styttri. Það kostar 60 kr. að hringja eina mínútu til Grænlands Það er sama verð og til Suður-Afríku eða Suður-Kóreu. Þó er heldur ódýrara að hringja hingað frá Grænlandi en héðan þangað. Ástæðan er sú að þessi símtöl þurfa öll að fara í gegnum Danmörku. Þetta upplýsti samgönguráðherra í svari við fyrirspurn minni sl. miðvikudag. Hann sagði enn fremur aðspurður að hann hygðist ekki beita sér fyrir breytingu á þessu.
MEIRA...
Þriðjudagur 14. september 2004
Vegmerkingar til vansa
Mikil umferð erlendra ferðamanna hefur verið um vegi landsins í sumar og fer þeim fjölgandi sem fara um landið akandi á eigin bílum eða bílaleigubílum. Verulega vantar upp á að merkingar séu læsilegar fyrir þessa ökumenn, en slíkt skapar hættu í umferðinni. Í vikunni heyrði ég af Svíum sem voru á ferð um landið og kvörtuðu yfir ástandinu. Þeir höfðu lagt á sig nokkurt íslenskunám til að auðvelda sér aksturinn og vissu hvað “einbreið brú” og “blindhæð” þýddu. Ekki eru allir erlendir ferðamenn eins forsjálir og þessir Svíar, því allmargir hafa lent í vandræðum, t.d. á Reykjanesbrautinni í sumar þar sem tvöföldun hennar var í gangi. Þeir lentu þar margir í öngstræti, þar sem tvöföldunin varð einföld á kafla, því að á skilti Vegagerðarinnar stóð "Öxl endar". Það voru fleiri en útlendingar sem ekki skildu hvaða skilaboð voru þarna á ferðinni. Í vor var samþykkt á Alþingi þingsályktunartillaga mín um að skipa nefnd til að meta og gera tillögur um hvernig bæta megi umferðaröryggi á þjóðvegum.
MEIRA...
Vegriðið vindharpa og verkfræðingar koma af fjöllum
Í sumar hafa miklar vegaframkvæmdir verið víða hér á höfuðborgarsvæðinu og ráðamenn duglegir við borðaklippingar, þar sem ég hef mætt sem þingmaður Reykjavíkur í samgöngunefnd. Eitt allmerkilegt kom fram við eina vígsluna, nánar tiltekið vígslu brúarinnar yfir Stekkjabakka milli Kópavogs og Breiðholts. Brúin hafði tekið upp á þeim ósköpum að hafa sjálfstæðan vilja og hvína með slíkum óhljóðum að nágrönnum varð ekki svefnsamt við óm þessarar nýju vindhörpu. Verkfræðingar Línuhönnunar sem voru höfundar verksins komu af fjöllum við þetta uppátæki mannvirkisins og hafa nú fengið viðbótarverkefni hjá Vegagerðinni við að þagga niður í sköpunarverki sínu. Þeir hafa eflaust náð einhverjum árangri því lítið hefur heyrst af kvörtunum vegna þessa undanfarið.
MEIRA...
Miðvikudagur 10. mars 2004
Hverra hagsmuna gæta borgarfulltrúar íhaldsins?
Það var fróðlegt að hlusta á fulltrúa Sjálfstæðisflokksins ræða í Kastljósi í gærkvöldi um skipulagsmálin í höfuðborginni og vegagerð. Þar talaði Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi eins og hún væri ekki fulltrúi Reykvíkinga þegar rætt var um legu Sundabrautar og kostnað við ytri leiðina svokölluðu. Í stað þess að krefjast þess að ríkið greiddi fyrir framkvæmdina að fullu eins og það gerir við sambærilegar vegaframkvæmdir utan höfuðborgarsvæðisins taldi hún sjálfsagt að Reykvíkingar stæðu straum af þeim kostnaði sem ytri leiðin kostaði umfram ódýrasta kostinn. Engin fordæmi eru fyrir því að sveitarfélög hafi verið látin borga hluta af vegagerð sem þessari, enda er hún á hendi ríkisins. Sundabraut er ekki aðeins hagsmunamál höfuðborgarbúa heldur landsmanna allra. Brautin er þjóðvegur í þéttbýli og því ber ríki að greiða hana samkvæmt lögum. Í kvöld var svo annar borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins við sama heygarðshornið í sjónvarpi. Það er sérkennilegt að hlusta á borgarfulltrúa taka afstöðu gegn umbjóðendum sínum, Reykvíkingum, með þessum hætti.
MEIRA...
Fimmtudagur 06. nóvember 2003
Þröngsýni samgönguráðherra við undirbúning Sundabrautar
Eitt stærsta verkefnið fram undan í vegamálum á höfuðborgarsvæðinu er lagning Sundabrautar. Hún er ekki aðeins mikilvæg framkvæmd fyrir höfuðborgarbúa heldur landsmenn alla. Hún opnar greiða leið inn í höfuðborgina og út úr henni aftur. Það er öllum ljóst sem aka um í höfuðborginni að vegakerfið á ýmsum fjölförnustu leiðum er að springa á álagstímum. Það kallar ekki síst á að framkvæmdir við gerð Sundabrautar hefjist sem fyrst. Það er einnig mikilvægt vegna skipulagsmála í borginni. Nokkuð hefur verið tekist á um hvaða leið skuli fara með brautina. Samgönguyfirvöld vilja fara hina svokölluðu innri leið, sem er heldur ódýrari, en borgaryfirvöld þá ytri. Voru allir borgarfulltrúar í Reykjavík, a.m.k. á síðasta kjörtímabili, einhuga um að fara ytri leiðina. Ég spurði Sturlu Böðvarsson á Alþingi í gær hvort eitthvað væri því til fyrirstöðu að setja bæði ytri og innri leiðina í umhverfismat. Hann vill halda sig við venjuna og setja aðeins óskaleið stjórnvalda, innri leiðina, í mat, þó ekkert sé því til fyrirstöðu að Skipulagsstofnun taki tvær leiðir í umhverfismat. Þessi ákvörðun ráðherra mun tefja framkvæmdir við Sundabrautina verði ytri leiðin fyrir valinu.
MEIRA...