Þriðjudagur 01. september 2009
Lengsta sumarþing Alþingis á enda runnið
Frammíköll hafa viljað fara úr böndum og nefndi einn þingmaður réttilega við mig að þingmenn hafi ekki kallað frammí heldur gert aðsúg að ræðumönnum. Það er kúnst að kalla framí svo vel fari. Ekki er ætlast til að menn öskri og æpi í þingsalnum, heldur skjóti inn stuttum athugasemdum eða hnyttnum stuttum innskotum. Andsvör þarf líka að fara yfir með nýliðunum, - þau hafa viljað fara út í „skjall samherja“ eins og forverar mínir kölluðu það. En í þeirra tíð voru þingmenn miskunnarlaust reknir úr ræðustól ef þeir stunduðu slíkt, með bjöllusætti og kröfu um andsvar en ekki skjall. Á þessu þarf að taka í haust. Yfirbragð þingstarfanna verður að bæta og ég er sannfærð um að þingmenn eru sammála mér um það. Standa verður vörð um virðingu Þingsins svo þjóðin hafi trú á Alþingi. Það er undir þingmönnum sjálfum komið. Nú verður ekkert septemberþing eins og gert er ráð fyrir í þingsköpunum. Það varð að samkomulagi milli mín, forustu þingsins og ríkisstjórnarinnar í ljósi þessa langa sumarþings að fella að þessu sinni niður septemberfundina. Það þýðir þó ekki að við þingmenn sitjum með hendur í skauti næsta mánuðinn, því fer fjarri.
MEIRA...
Mánudagur 31. ágúst 2009
Þingforsetar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funduðu í Ósló
Í síðustu viku var haldinn árlegur fundur þingforseta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og fór fundurinn fram í Ósló að þessu sinni, dagana 25.-27. september. Þessir fundir eru líklega þeir mikilvægustu í alþjóðastarfi forseta Alþingis, enda vettvangur til að efla tengsl við þjóðþing okkar nánustu samstarfsþjóða. Því miður gat ég ekki setið fundinn til enda vegna anna á Alþingi, en 3. og síðasta umræða um ríkisábyrð vegna ICESAVE reikninganna fór fram 27. og 28. sept., eins og kunnugt er, svo ég hentist heim frá Osló daginn eftir að fundurinn hófst en náði að flytja mín innlegg og taka þátt í mikilvægum umræðum áður en ég fór. Á fundinum í Ósló gerðum við þingforseta grein fyrir stjórnmálum og þingstörfum í löndum okkar. Því miður hefur kreppan leikið Íslendinga og Eystrasaltsríkin illa og ljóst er að Finnar og Svíar finna einnig fyrir samdrætti og auknum erfiðleikum. Það var þó ánægjulegt að Norðmenn og Danir virðast ætla að komast betur út úr kreppunni en flestar aðrar þjóðir.
MEIRA...
Sunnudagur 15. mars 2009
Öflugur listi – erfið verk
Þá er niðurstaðan komin hjá okkur í Reykjavíkurprófkjörinu og Samfylkingin er með sigurstranglegan lista í kosningunum í vor. Ekki náði ég alveg settu marki, 2. sætinu á framboðslista í Reykjavík öðru hvoru megin, - verð að láta mér lynda 4. sætið. Ég er þakklát fyrir stuðninginn í það. Fjórða sætið ætti að vera þingsæti, ef allt gengur eins og síðast og samkvæmt fylgi Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum nú. Ekki leit það burðuglega út fyrir mig þegar tölurnar úr netkosningunni voru birtar, en þegar tölurnar eftir talningu atkvæða á pappír bárust kom ég sterk inn. Pappírinn skilaði mér sem sagt inn á framboðslistann. Stuðningsmenn mínir völdu greinilega síður tölvu til að kjósa, - enda gamla lagið öruggast og alltaf stemmning að mæta á kjörstað og setja seðilinn sinn í kjörkassa.
MEIRA...
Laugardagur 14. mars 2009
Prófkjörsbaráttan senn á enda
Jæja, nú er það 3ja sætið, - prófkjörsdagur runninn upp. Kjörfundur hófst í Skólabrú kl. 9 og stendur hann yfir til kl. 18 í kvöld. Utankjörfundarkosning hófst á laugardaginn fyrir viku og netkosning á mánudaginn sl. Hún stendur yfir til kl. 18 í kvöld. Á meðan verð ég með opið fyrir gesti og gangandi í prófkjörsmiðstöðinni minni í Kirkjuhvoli. Vona ég að sem flestir sjái sér fært að líta við. Héðan úr prófkjörsmiðstöðinni sést fólkið flykkjast inn í Skólabrú til að kjósa. Á hádegi höfðu 2500 manns kosið og er allt útlit fyrir að kosningaþátttaka verði þokkaleg. Það verður spennandi að heyra fyrstu tölur kl. 18. Hér er mikill gestagangur, kaffi þambað og vínarbrauðin frá Hafliða renna út eins og heitar lummur. Skoppa og Skrítla ætluðu að vera hér kl. 15:30 en Skoppa skall á höfuðið á hlaupum og liggur nú með heilahristing heima hjá sér. Lucy krús vinkona þeirra kemur með Skrítlu í staðinn. Það verður skemmtilegt. Skemmtileg prófkjörsvika er senn á enda og í kvöld efast ég ekki um að frambjóðendur verði ósköp fegnir. Þrátt fyrir að þetta sé skemmtilegur tími þá er ekki hægt að neita því að hann tekur á taugarnar hjá mörgum.
MEIRA...
Sunnudagur 01. febrúar 2009
Tekið við starfi félags- og tryggingamálaráðherra
Nú hef ég tekið við embætti félags- og tryggingamálaráðherra af Jóhönnu Sigurðardóttur, sem tekið hefur sæti forsætisráðherra í nýrri ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, með stuðningi Framsóknarflokksins. Af þessu tilefni afhenti Jóhanna mér lykil af velferðinni. Mikið og ærið verk bíður mín í ráðuneytinu fram að kosningum. Verð ég því að láta hendur standa fram úr ermum og láta verkefnin tala. Helstu verkefnin lúta að því að tryggja hag heimilanna og aðgerðum til að sporna gegn vaxandi atvinnuleysi. Með svokallaðri velferðarvakt er ætlunin að meta áhrif efnahagsástandsins á félagslegar og fjárhagslegar aðstæður fólksins í landinu og gera tillögur til að mæta þeim. Einnig er ætlunin að kanna sérstaklega mismunandi áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna og bregðast við á þann sem nauðsynlegt þykir. Svo má ekki gleyma komandi alþingiskosningum en...
MEIRA...
Þriðjudagur 18. nóvember 2008
Ekkert tengd hryðjuverkum
"Ekkert í þeim gögnum sem við höfum í okkar fórum gefur nokkra vísbendingu um að Ísland, Íslendingar eða íslenskt fyrirtæki tengist hryðjuverkum eða hryðjuverkasamtökum á nokkurn hátt," sagði Fernando Reinares prófessor og yfirmaður alheimshryðjuverkarannsókna, Program on Global Terrorism, við konunglegu alþjóða rannsóknarstofnunina í Madrid. Hann hélt fyrirlestur um þá hryðjuverkaógn sem steðjar að Evrópu á fundi nefndar um borgaralegt öryggi sem ég sit í fyrir Íslands hönd hjá þingmannasamtökum NATO-ríkja sem nú halda ársfund sinn í Valencia á Spáni. Þetta var svar við spurningu minni eftir fyrirlesturinn um hvort hann teldi einhver tengsl milli Íslands, Íslendinga eða íslenskra fyrirtækja og hryðjuverka. Ég spurði í ljósi þess að breska ríkistjórnin hefði beitt hryðjuverkalögum á íslenskt fyrirtæki, Landsbankann, 8. október síðastliðinn og í kjölfarið sett fyrirtækið á lista yfir hryðjuverkasamtök eins og...
MEIRA...
Mánudagur 30. apríl 2007
"Menn eiga ekki að sitja í stjórn of lengi"
...sagði Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins, aðspurður í sjónvarpsfréttum í síðustu viku, um ástæður þess að Jóhannesi Geir var skipt út fyrir Pál Magnússon fyrrverandi aðstoðarmann Valgerðar Sverrisdóttur, í stjórnarformennsku Landsvirkjunar eftir 12 ára setu þar. Þarna hitti Jón naglann á höfuðið. Menn eiga ekki að sitja of lengi í valdastöðum, – og menn eiga ekki heldur að sitja of lengi í ríkisstjórn. Þeir verða værukærir, – valdspilltir. Nú er bitlingaúthlutunin í fullum gangi hjá stjórnarliðinu og daglega birtast okkur dæmi þar sem reynt er að krafsa yfir stórfelldar vanrækslusyndir undanfarinna ára. Kjósendur ættu að taka þessi orð formanns Framsóknarflokksins alvarlega og fara að ráðum hans í þessum efnum. Það er ekki hollt fyrir neinn hvorki flokk né fólkið í landinu að sömu menn stjórni of lengi. Eftir 12 og 16 ára stjórnarsetu er kominn tími til að breyta.
MEIRA...
Miðvikudagur 14. febrúar 2007
Margnota loforð – blásið til blaðamannafundar
Það líður varla sá dagur að ráðherrar í ríkisstjórninni blási ekki til blaðamannafundar til að kynna hvað þeir ætla að gera á næsta kjörtímabili, - skrifa undir loforð út og suður og kynna plögg eins og samgönguáætunina feitu og fínu glaðbeittir og sælir á svip, líkt og þeir séu alveg búnir að gleyma því að svona loforð voru skorin ótæpilega niður eftir að þeir komust í ráðherrastólana aftur, - síðast og líka þarsíðast. Þetta er eins og skrípaleikur. Eru menn virkilega búnir að gleyma því hvernig fór með loforðin og samgönguáætlanirnar eftir kosningarnar 1995, 1999 og 2003? Ég man það. Í dag var tekin skóflustunga að 110 rúma hjúkrunarheimili í Reykjavík, heimili sem búið var að lofa nokkrum sinnum, - fyrir Alþingiskosningarnar 2003, síðan á miðju kjörtímabili, - með undirritunum, - brosandi með fulltrúum eldri borgara og blaðamannafundum. Hjúkrunarheimilið átti að vera komið í gagnið í byrjun þessa árs, en nú þremur mánuðum fyrir kosningar var fyrst tekin upp skófla og henni stungið í freðna jörð.
MEIRA...
Föstudagur 19. janúar 2007
Byrgið, Birkir og B-listinn
Ætlar Framsóknarflokkurinn að axla sína ábyrgð í Byrgismálinu? Ekki fengust svör við því í umræðu utan dagskrár í morgun hjá formanni flokksins. Það er ljóst að allt sem varðar starfsemi Byrgisins og tengsl þess við stjórnvöld er grafalvarlegt og dæmi um afglöp Framsóknarmanna við stjórnvölinn á Íslandi. Hvað gekk þeim til? Þeir mylja undir trúfélag, hundruð milljóna króna af skattpeningum almennings án eftirlits, vitandi vits um að þar á bæ væri allt í óreiðu og sukki. Fyrst var Byrgið undir verndarvæng Halldórs Ásgrímssonar formanns Framsóknarflokksins í utanríkisríkisráðuneytinu og þangað bárust mjög alvarlegar upplýsingar í svartri skýrslu sem ekkert var gert með. Hjálmar Árnason þingflokksformaður Framsóknar var einn helsti talsmaður Byrgisins lengi vel og virtist þá eins og Byrgið væri deild í Framsókn. Þrír Framsóknarráðherrar hafa setið í Félagsmálaráðuneytinu á þessu kjörtímabili eftir Páli Péturssyni, þeir Árni Magnússon, Jón Kristjánsson og nú síðast Magnús Stefánsson. Þar var líka Birkir Jón Jónsson formaður fjárlaganefndar Alþingis, þá aðstoðarmaður Páls Péturssonar.
MEIRA...
Mánudagur 28. ágúst 2006
Dæmalaust dómgreindarleysi
Viðbrögð nýs formanns Framsóknarflokksins við harðri gagnrýni þingmanna og fleiri vegna framgöngu Valgerðar fyrirrennara hans í iðnaðarráðuneytinu er hún leyndi þingið upplýsingum og yfirlýsing um að hann hefði gert hið sama, eru dæmalaust dómgreindarleysi og bera vott um að hann þekki ekki skyldur sínar sem ráðherra. Það er grafalvarlegt þegar ráðherra heldur mikilvægum upplýsingum frá Alþingi. Sérstaklega þegar þingið er að taka ákvörðun um mestu framkvæmdir sögunnar og hrikaleg náttúruspjöll á stærsta ósnortna landsvæði í Evrópu, - og upplýsingarnar varða kostnað og ekki síður öryggi framkvæmdarinnar og fólks sem býr á því landsvæði sem virkjunin er reist á. Í öðrum löndum yrði ráðherra að segja af sér ef hann yrði uppvís að slíku. Valgerður Sverrisdóttir þáverandi iðnaðarráðherra upplýsti Alþingi ekki um alvarlegar athugasemdir og áhyggjur Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings vegna öryggis- og umhverfisatriða við byggingu Kárahnjúkastíflu. Svör hennar við þessu eru að þingmenn séu ekki sérfræðingar og þess vegna hafi skýrsla Gríms ekki átt erindi við þingmenn. Einmitt vegna þess að þingmenn eru ekki sérfræðingar hefðu þeir átt að fá þessar upplýsingar áður en þeir greiddu um málið atkvæði á Alþingi.
MEIRA...
Mánudagur 21. ágúst 2006
S-hópurinn áfram við völd
Um helgina ákvað Framsóknarflokkurinn að fara að vilja flokkseigendanna við val á forystu flokksins. Halldór Ásgrímsson valdi sjálfur eftirmann sinn. Konurnar áttu þar ekki upp á pallborðið. Það kom ekki á óvart. Þessi gamli flokkur er íhaldssöm valda- og fyrirgreiðslustofnun. Sigurvegarar helgarinnar voru því flokkseigendurnir og S-hópurinn. Einn helsti grundvöllurinn undir völdum Framsóknarflokksins eru nefnilega ekki síst fjárframlög frá S-hópnum og fyrirtækjum tengdum honum. Fyrirtækjum sem hafa bólgnað út og ráða nú yfir milljarðatugum eftir umsaminn hlut Framsóknarflokksins í einkavæðingunni. Þar kom í þeirra hlut Búnaðarbankinn og hlutur Landsbankans í VÍS, en það var skilyrði Framsóknarflokksins fyrir einkavæðingu bankanna tveggja að VÍS fengi án útboðs hlut Landsbankans í fyrirtækinu. Þau kaup styrktu síðan hlut VÍS í kaupunum á Búnaðarbankanum. Jón Sigurðsson var frambjóðandi þessa hóps, enda átti hann þátt í því bak við tjöldin að byggja upp það net sem S-hópurinn er. Hann var kallaður til verka – eins og hann sagði sjálfur - þegar höfuðpaur S-hópsins, Finnur Ingólfsson, þótti ekki í pólitískum húsum hæfur og Árni Magnússon erfðaprins Halldórs var stokkinn frá borði saddur pólitískra lífdaga. Um helgina átti Framsóknarflokkurinn kost á tveimur öflugum konum á besta aldri í forystusveitina. En flokkurinn valdi karlana, - "tvo kæfubelgi" eins og Þráinn Bertelsson kallaði þá í hnyttnum Fréttablaðspistli sínum á dögunum.
MEIRA...
Þriðjudagur 21. mars 2006
Sýndarmennska íhaldsins í öldrunarmálum
Kosningar eru greinilega í aðsigi. Sjálfstæðismenn í Reykjavík muna allt í einu eftir öldruðum eftir að hafa verið í ríkisstjórn undanfarin 15 ár, þar sem þeir hafa nýtt illa tækifærin til að bæta kjör, þjónustu og aðbúnað aldraðra. Nú er staðan þannig að við erum að minnsta kosti 15 árum á eftir nágrannaþjóðum okkar í öldrunarmálunum. Reykjavíkuríhaldið vill að hinir öldruðu eigi að njóta hins besta og að þeir hafi raunverulegt val um búsetu, aðstöðu og umhverfi. 350 bíða í brýnni þörf og 950 deila herbergi með öðrum Eins og alþjóð er kunnugt er allnokkur vandi uppi í málefnum aldraðra, sérstaklega hvað varðar hjúkrunarheimili. Talið er að í dag séu um 350 einstaklingar í brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými og um 950 einstaklingar deila herbergi með öðrum á hjúkrunarheimilum. Um 1300...
MEIRA...
Þriðjudagur 06. desember 2005
Örorkuskýrslan er áfellisdómur
Örorkuskýrslan sem kynnt var í síðustu viku er mikill áfellisdómur yfir stjórnvöldum. Það er aumkunarvert að fylgjast með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra reyna að klóra í bakkann með gamla kosningabrosið og segja að tekjutryggingaraukinn og aldurstengdu örorkubæturnar væru ekki þarna inni, svo ekki væri að marka niðurstöðurnar. Það mátti reyna, en það er nú þannig að allar upplýsingarnar í samanburðinum eru fengnar úr skattframtölum, - svo þar eru allar tekjur örykja, - bætur, aukar og uppbætur, lífeyrissjóður og atvinnutekjur, ef einhverjar eru. Nú þegar þetta er skrifað boðar heilbrigðisráðherra gagnrýni á niðurstöður skýrslunnar, en ekkert hefur enn heyrst frá þeim bæ. Ráðherrunum væri nær að huga að því hvernig þeir geta bætt stöðu öryrkja í stað þess að berja höfðinu við steininn á þennan hátt. Stjórnvöld verða að horfast í augu við staðreyndir málsins og bregðast við vandanum. Það verður að gera öryrkjum kleift að taka meiri þátt í samfélaginu, eins og nágrannaþjóðir okkar hafa gert sér far um. Það verður að bregðast við því ástandi sem skýrslan varpar svo vel ljósi á.
MEIRA...
Fimmtudagur 03. nóvember 2005
Skilyrðislaust bann við fangaflugi um Ísland
Upplýsingar um flug með fanga um íslenska flugvelli og flughelgi liggja fyrir eftir að danska þingið upplýsti um málið, - en þessi flug um Danmörku hafa komið nokkrum sinnum til umræðu í danska þinginu. Þessu verða íslensk stjórnvöld að bregðast við strax og banna flug um íslenska lofthelgi og flugvelli með grunaða fanga til staða þar sem hægt er að beita pyntingum við að yfirheyra þá. Ef þetta flug verður ekki strax stöðvað og bandarískum stjórnvöldum tilkynnt um þann vilja okkar, eru Íslendingar samsekir í því að brjóta alþjóðlega mannréttindasáttmála sem við höfum samþykkt. Utanríkisráðherra verður að bregðast við þessu strax og banna alla fangaflutninga um landið. Össur Skarphéðinsson ásamt fleiri þingmönnum Samfylkingarinnar hefur lagt fram þingmál um að koma í veg fyrir að þessir flutningar viðgangist og að stjórnvöld beiti sér fyrir því að alþjóðasamningum verði framfylgt. Við getum ekki beðið eftir því að umræða um þetta mál fari fram á þinginu. Stjórnvöld verða að bregðast við nú þegar. Annað verður ekki þolað.
MEIRA...
Mánudagur 24. október 2005
Áfram stelpur! - Árni hvað?
Það er alveg óþolandi og ótrúlegt að við höfum ekki náð lengra á 30 árum en raun ber vitni. Nánast öll baráttumálin frá kvennafrídeginum 1975 eru enn í fullu gildi. Þetta gengur ekki lengur. Nú verða jafnréttismálin að fara í forgang. Hvað ætla stjórnvöld að gera, - ríkisstjórnin sem hefur verið við völd í í áratug? Í morgun kom Fréttablaðið, svona líka bleikt, inn um lúguna með lausnina, og á forsíðunni var hún; - Árni Magnússon ætlar að bjarga þessu öllu með gæðavottun á jöfn laun! Honum ætti ekki að vera skotaskuld úr því að redda þessu, manninum sem ruddi konu úr ríkisstjórninni til að komast sjálfur í ráðherrastól! Árni er einmitt trúverðugastur til að kippa þessu í liðinn, hann sem gerði sér lítið fyrir og rændi heilu kvenfélagi til að styrkja sína eigin stöðu. Það er ekki að undra að kjósendur treysti ekki Framsóknarflokknum, - og þá síst konurnar - þegar jafnréttisráðherrann er með svona feril að baki. Ekki er laust við að hljómurinn sé nokkuð holur þegar á að slá sig til riddara á kvennafrídaginn 24. október. Þetta ástand mun ekki breytast fyrr en við tryggjum konu embætti forsætisráðherra og jafnréttismálin heyra undir hana. Áfram stelpur!
MEIRA...
Laugardagur 30. júlí 2005
Engin atvinnuviðtöl – úrelt vinnubrögð
Menntamálaráðherra hefur skipað Pál Magnússon útvarpsstjóra. Honum er óskað velfarnaðar í starfi. Páll var vissulega einn af hæfustu umsækjendunum um stöðuna. Það er líka tilbreyting að ráðinn skuli yfirmaður hjá Ríkisútvarpinu sem ekki er flokksbundinn Sjálfstæðismaður. En hvaða vinnubrögðum var beitt við valið og hverjar voru forsendurnar sem farið var eftir? Í löndunum í kringum okkur eru hæfir umsækjendur um sambærilegar stöður kallaðir í ýtarleg viðtöl, jafnvel við einstaklinga óháða stjórnvöldum, og í kjölfar þeirra er ráðið í stöðuna. Enginn af umsækjendunum um útvarpsstjórastarfið var kallaður í starfsviðtal. Það vekur grunsemdir um að það hafi verið búið að ákveða fyrirfram hver ætti að fá starfið. Kastljósið og Ísland í dag sýndu í gærkvöld viðtöl við Pál sem hann komst ágætlega frá og var ég nokkuð ánægð með viðhorf hans þar. Eðlilegast hefði þó verið að allir umsækjendur sem uppfylltu ákveðin skilyrði um reynslu og menntun hefðu farið í atvinnuviðtöl og svarað spurningum svipuðum þeim sem Páll var spurður í sjónvarpinu, - og síðan ráðið í stöðuna ....
MEIRA...
Mánudagur 25. júlí 2005
Sýnir Þorgerður Katrín þor?
Tuttugu og þrír hafa sótt um starf útvarpsstjóra, þar af aðeins þrjár konur. Hvernig væri að slá tvær flugur í einu höggi og ráða sem útvarpstjóra í senn mest menntaða og reyndasta umsækjandann og um leið auka hlut kvenna í yfirstjórn ríkisstofnana? Það getur Þorgerður Katrín gert nú þegar hún ræður nýjan útvarpstjóra. Við vitum að það þarf vilja og þor til að breyta stöðu kvenna frá því sem nú er og þá er að sjá hvort Þorgerður Katrín hefur það þor. Mig furðar að í allri fjölmiðlaumfjölluninni um útvarpstjórastarfið skuli ávallt vera gengið út frá sömu gömlu, úreltu gildunum,- þ.e. "réttu" flokksskírteini og klíkuskap. Þegar ég renni yfir umsækjendalistann sé ég að þarna eru nokkrir sem vel væru að starfinu komnir. Einn ber þó af, að öðrum ólöstuðum, hvað varðar menntun, reynslu af rekstri og fjölmiðlastarfi. Það er dr. Sigrún Stefánsdóttir, fyrrverandi fréttamaður og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV um árabil, fv. rektor blaðamannaháskólans í Árósum, fv. yfirmaður og frumkvöðull að fjölmiðlanámi við Háskóla Íslands, svo fátt eitt sé upp talið, og núverandi yfirmaður upplýsingamála hjá norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði.
MEIRA...
Mánudagur 04. október 2004
Stríðshanskanum kastað
Ótrúleg ósvífni og smekkleysi nýkjörins forseta Alþingis við setningu Alþingis á föstudaginn virðist gefa tóninn fyrir það sem koma skal í vetur á þinginu. Það var ekki fyrr búið að minnast látinna þingmanna og kjósa hann forseta þingsins er hann í hátíðarræðu - þar sem ekki var unnt að koma andmælum við, - misbauð stórum hluta þeirra þingmanna sem hann á að þjóna sem forseti alls þingsins. Hann sló með málfutningi sínum á sáttahönd forseta Íslands og þeirra stjórnarandstöðuþingmanna sem kusu hann, í trausti þess að hann starfaði sinn síðasta vetur sem forseti allra þingmanna, en ekki aðeins ríkisstjórnarmeirhlutans eins og undanfarin ár. Þar brást hann eins og fyrri daginn.
MEIRA...
Mánudagur 13. september 2004
Síminn misnotar almannafé
Fréttir af því að Síminn hafi keypt sýningarrétt á ensku knattspyrnunni og fjórðung í Skjá einum vekja furðu. Hvað vill fyrirtæki í ríkiseigu, sem ætlunin er að selja á næstunni, með svona fjárfestingu? Svo láta ráðamenn eins og þeir hafi ekki vitað neitt um þessar fjárfestingar Símans. Hversu langt er hægt að ganga í að gera grín að almenningi? Ef þetta er rétt þá efast ég um hæfni þessara manna til að fara með almannaeigur og almannafé. Hér er verið að nota almannafé til að skekkja samkeppnisstöðuna á markaðinum. Það er alveg ljóst að með þessum ráðstöfunum er verið að búa í haginn fyrir einhverja væntanlega kaupendur Símans, þóknanlega stjórnvöldum.
MEIRA...
Sunnudagur 22. ágúst 2004
Foringjaræði Framsóknar - karlaklíka Halldórs makkar
Framsóknarforystan beitir sömu vinnubrögðum í ráðherramálinu og í fjölmiðlamálinu í sumar. Forneskjulegt foringjaræðið er ekki í neinum takti við vilja grasrótarinnar í flokknum, ekki frekar en í fjölmiðlamálinu, þar sem forystan var gerð afturreka. Fámenn karlaklíka gæðinga formannsins leggur á ráðin til að tryggja eigin hag og bolar burtu konum sem gætu ógnað framgangi þeirra. Foringjaræðið eru gamaldags vinnubrögð þegar lýðræðisleg vinnubrögð og gagnsæi eru krafa nútímans í stjórnmálum. Það kom norrænu þingmönnunum í umhverfisnefnd Norðurlandaráðs, sem ég fundaði með í vikunni, verulega á óvart að Siv yrði fórnað fyrir forsætisráðherrastól formannsins
MEIRA...
Þriðjudagur 10. ágúst 2004
Sigur Samfylkingarinnar veldur raunum ríkisstjórnarinnar
Hinn sögulegi sigur Samfylkingarinnar í Alþingiskosningunum í fyrra er orsök þeirra rauna sem ríkisstjórnin á í nú. Davíð Oddsson hrökklast úr forsætisráðuneytinu í næsta mánuði og Halldór Ásgrímsson verður að fórna ráðherra fyrir forsætið í ríkisstjórninni. Sú staða veldur mikilli ólgu í báðum flokkum og erfitt er að sjá hvernig hún endar. Sumarið hefur verið makalaust í pólitíkinni og ekki laust við að manni hafi oft verulega misboðið framferði ríkisstjórnarflokkanna. Stjórnarskráin var fótum troðin og brellur og bras stjórnarherranna við að sniðganga lög og rétt, alþjóðasamninga og mannréttindi voru með ólíkindum. Enda hefur allt í kringum fjölmiðlamálið, framgangur þess og lyktir verið ríkisstjórninni og stjórnarliðum til mikillar háðungar. Forseti Íslands notfærði stjórnarskrárbundinn rétt sinn til að vísa þessu umdeilda máli til þjóðarinnar til ákvörðunar í þjóðaratkvæðagreiðslu og þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi með bolabrögðum komið í veg fyrir hana varð niðurstaðan sú að fjölmiðlalögin urðu ekki að veruleika. Dónaleg framkoma við forsetann Stór hluti stjórnarþingmanna og ráðherra sýndi lýðræðinu og forsetanum lítilsvirðingu með því að hunsa innsetningarathöfn forseta Íslands. Ekki á þetta þó við alla sem ekki mættu til athafnarinnar. Eins og flestir vita voru tveir þingmenn veikir og nokkrir við opinber embættisstörf, en hreint ekki allir. Það kom t.d. fram í Fréttablaðinu að Árni Magnússon félagsmálaráðherra hafi verið á samkomu hjá hvítasunnumönnum í Kirkjulækjarkoti þennan dag, i forföllum Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra, formanns Framsóknarflokksins. Halldór hafði semsagt ekki ætlað að sjá sóma sinn í að mæta við innsetninguna, valdi frekar sértrúarsamkomuna, en varð að brjóta odd af oflæti sínu sem starfandi forsætisráðherra og mæta. Hann sendi því erfðaprinsinn Árna félagsmálaráðherra í sinn stað á trúarsamkomuna. Allt tal um að menn hafi verið uppteknir úti á landi með fjölskyldum sínum þennan dag er fáránlegt. Auðveldlega er hægt að skreppa til Reykjavíkur dagspart þegar forsetinn tekur við embætti við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu. Það er hluti af skyldum þingmanna. Ég var meðal þeirra sem voru í fríi með fjölskyldunni úti á landi, en brá mér í bæinn til að vera við athöfnina. Ekki kom það að sök þótt fækkaði um einn í sumarbústaðnum hluta úr degi. Mín var þó vonandi svolítið saknað, en gleðin varð því meiri þegar ég mætti aftur á staðinn. Í lok þessa sumarpistils óska ég öllum góðrar heilsu og gæfuríks síðsumars.
MEIRA...