Ég heiti fullu nafni Ásta Ragnheiđur Jóhannesdóttir, - Ásta í höfuđiđ á föđurömmu minni Ástu Jónsdóttur athafnakonu af Vesturgötunni í Reykjavík, sem stofnađi og rak fyrstu blómabúđina í borginni, Blóm og ávexti, snemma á síđustu öld undir kjörorđinu "Látiđ blómin tala" og svo heiti ég Ragnheiđur í höfuđiđ á dóttur hennar, föđursystur minni Ragnheiđi Bjarnadóttur, sem lést af slysförum ađeins 11 ára gömul.
Ég er elst systkina minna og fyrsta barnabarn í báđum ćttum. Nćst mér er Guđrún félagsfrćđingur, svo koma ţeir Ragnar verkfrćđingur og Bjarni viđskiptafrćđingur. Foreldrar mínir eru Margrét Ragnarsdóttir húsmóđir og Jóhannes Bjarnason verkfrćđingur. Ásta föđuramma mín var ein af fyrstu konunum sem luku stúdentsprófi og föđurafi minn Bjarni Ásgeirsson ţingmađur, ráđherra og sendiherra byggđi fyrsta gróđurhús á Íslandi 1923 ađ Reykjum í Mosfellssveit ţar sem ţau bjuggu félagsbúi. Í Mosfellssveitinni kynntist ég sveitasćlunni ţví ţar bjuggum viđ fram ađ barnaskólagöngu minni og einnig brćđur pabba međ fjölskyldum sínum og svo dvaldi ég ţar löngum í sumarbústađ móđurforeldra minna. Ţar var oft glatt á hjalla og ýmislegt brallađ.
Bjarni afi minn var hagmćltur og eru til margar vísur sem hann orti á Alţingi. Hann orti einnig vísur til okkar barnabarna sinna en fyrstu vísuna um mig orti hann ţegar ég var nokkurra mánađa og hann kom í mat til foreldra minna á Víđimelinn í matarhléi á ţinginu í kolvitlausu veđri til ađ dást ađ sonardóttur sinni. Ég lá ţá sofandi úti á vagni.
Vísan er svona:
Úti er blessađ ungbarniđ
viđ óveđriđ ađ glíma.
Ţađ er gott ađ venjast viđ
vosbúđina í tíma.
Fyrsta ár ćvi minnar bjó ég ásamt foreldrum mínum á Víđimel í Reykjavík í húsi međ móđurömmu minni, Guđrúnu Guđmundsdóttur frá Skáholti, og móđurafa, Ragnari Guđlaugssyni bryta og veitingamanni. Ég dvaldi hjá ţeim um tíma ţegar fađir minn var viđ framhaldsnám erlendis ásamt móđur minni og var ég mjög hćnd ađ ţeim.
Ragnar afi minn rak m.a. Hressingarskálann í Austurstrćti, ,,Hressó" og Hótel Valhöll á Ţingvöllum á sumrin og má segja ađ ţar hafi ég stigiđ mín fyrstu spor í atvinnulífinu viđ afgreiđslu og eldhússtörf.
Fjölskylda mín fluttist frá Reykjum á Laugarásveginn ţegar ég hóf barnaskólanám í Langholtsskólanum og ţađan fór ég í Vogaskóla í landspróf og svo í MR ţar sem ég átti frábćr ár í stćrđfrćđideildinni. Ég var svo heppin ađ lenda í eina blandađa bekknum, en annars voru allir bekkirnir kvenna- eđa karlabekkir. Í skólanum var ég međ einstaklega skemmtilegu fólki. Háskólaárin voru ekki síđur viđburđarík Ţar kynntist ég eiginmanni mínum í félagsfrćđideildinni og ţar steig ég mín fyrstu spor í pólitíkinni er ég fór í frambođ fyrir Frambođsflokkinn eđa 0-flokkinn í Alţingiskosningunum 1971 ásamt skólafélögum mínum og eiginmanni.
Fjölskylda mín
Ég er gift Einari Erni Stefánssyni félagsfrćđingi, sem starfar hjá
Íbúđalánasjóđi. Börnin okkar eru tvö, Ragna Björt og Ingvi Snćr. Ragna Björt er
búsett í Amsterdam ţar sem hún nam margmiđlun eftir BA-próf í bókmenntafrćđi frá
Háskóla Íslands. Hún býr ţar ásamt frönskum sambýlismanni sínum, Erwan le Roux,
og yndislegri dóttur ţeirra, Sóley, sem fćddist 20. febrúar 2008, ljúfri og
glađri stúlku sem ég sé of sjaldan. Ragna Björt starfar hjá hollensku
tískufyrirtćki í Amsterdam. Ingvi Snćr er lögfrćđingur ađ mennt,
hérađsdómslögmađur og starfar hjá lögfrćđistofunni Lex. Eiginkona hans er Hildur
Ýr Ottósdóttir arkitekt, dóttir míns ástkćra enskukennara í MR og fararstjóra
Ottós Jónssonar og Bergţóru Gustavsdóttur leikskólakennara, - frábćr
tengdadóttir sem hefur erft alla bestu kosti foreldra sinna. Ţau Ingvi Snćr eiga
tvö börn, Ástu Rún og Ottó Snć. Ásta Rún er fćdd 25. febrúar 2002 og er nýbyrjuđ
í Melaskólanum, augasteinn ömmu sinnar, kát og listrćn stúlka. Ottó Snćr er
fćddur 16. apríl 2006, mikill gullmoli og orkubolti. Barnabörnin mín ţrjú eru
öll yndisleg og ég er ákaflega stolt af ţeim. (uppfćrt 11.09.08)
Um störf og stjórnmálaferil.
Sjá nánar í ćviágripi á alţingissíđu.