|
|
 Jón Kristjánsson (Jón Halldór) F. í Stóragerði í Óslandshlíð í Skagafirði 11. júní 1942. For.: Kristján Jónsson (f. 27. des. 1905, d. 20. okt. 1994) bóndi þar og síðar á Óslandi og k. h. Ingibjörg Jónsdóttir (f. 1. apríl 1906, d. 20. okt. 1955) húsmóðir. K. (25. des. 1964) Margrét Hulda Einarsdóttir (f. 19. nóv. 1946) bankastarfsmaður. For.: Einar Ólason og Ásgerður Guðjónsdóttir. Börn: Viðar (1964), Ásgerður Edda (1968), Einar Kristján (1973).
Samvinnuskólapróf 1963.
Verslunarstörf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga 1959-1963. Verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöðum 1963-1978. Félagsmálafulltrúi Kaupfélags Héraðsbúa 1978-1984. Skip. 14. apríl 2001 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 23. maí 2003. Skip. 23. maí 2003 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 7. mars 2006. Skip. 7. mars 2006 félagsmálaráðherra, lausn 15. júní 2006.
Ritstjóri Austra á Egilsstöðum síðan 1974. Í sýslunefnd Suður-Múlasýslu 1974-1987. Formaður stjórnar Héraðsskjalasafns Austfirðinga 1975-1988. Þingkjörinn endurskoðandi Framkvæmdastofnunar ríkisins 1974-1983. Stjórnarformaður Kaupfélags Héraðsbúa 1987-1995. Í miðstjórn Framsóknarflokksins frá 1985. Í Norðurlandaráði 1990-1991. Fulltrúi Íslands í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1985-1987. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1989 og afvopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1988. Varaformaður Ferðamálaráðs síðan 1999. Í stjórnarskrárnefnd frá 2005, formaður.
Alþm. Austurl. 1984-2003, alþm. Norðaust. 2003-2007 (Framsfl.).
Vþm. Austurl. apríl 1979, apríl 1981, febr.-mars og nóv. 1982, okt.-nóv. 1983, apríl, maí, nóv. og des. 1984.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 2001-2006. Félagsmálaráðherra 2006.
Forseti Nd. 1987-1988. 2. varaforseti Alþingis 2006-2007. Fjárlaganefnd 1991-2001 (form. 1995-2001), félagsmálanefnd 1991-1995, allsherjarnefnd 1995-1999, sérnefnd um stjórnarskrármál 1995, 1999 og 2000-2002, sérnefnd um fjárreiður ríkisins 1995-1997, utanríkismálanefnd 1999-2001 og 2006-2007 (varform. 1999-2001 og 2006-2007), samgöngunefnd 1999-2001 og 2006-2007, heilbrigðis- og trygginganefnd 1999-2001, landbúnaðarnefnd 2007.
Íslandsdeild NATO-þingsins 1991-2001, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2006-2007.
Ritstjóri: Samherji, ársrit Kaupfélags Héraðsbúa (1969-1985). Austri (1974-1995). Tíminn (1993-1995).
|
Síðast breytt 23.05.2007. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur |
|
|
|

|