Egill Jónsson

Egill Jónsson

Þingseta

Landskjörinn alþingismaður (Austurlands) 1979–1987, alþingismaður Austurlands 1987–1999 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Austurlands október–nóvember 1978.

2. varaforseti efri deildar 1991.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur að Hoffelli í Nesjahreppi 14. desember 1930, dáinn 12. júlí 2008. Foreldrar: Jón J. Malmquist (fæddur 12. október 1888, dáinn 27. mars 1956) bóndi þar og Halldóra Guðmundsdóttir (fædd 1. júní 1901, dáin 4. ágúst 1985) húsmóðir. Maki (25. desember 1955): Halldóra Hjaltadóttir (fædd 3. janúar 1929, dáin 27. nóvember 2017) húsmóðir. Foreldrar: Hjalti Jónsson og kona hans Anna Þorleifsdóttir, dóttir Þorleifs Jónssonar alþingismanns og systir Þorbergs Þorleifssonar alþingismanns. Börn: Anna (1955), Valgerður (1956), Hjalti (1960), Eiríkur (1962).

Búfræðipróf Hvanneyri 1950, búfræðikandídat Hvanneyri 1953.

Ráðunautur hjá Búnaðarfélagi Íslands 1954–1955. Starfsmaður Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga 1956–1957, síðan ráðunautur til 1980.

Fulltrúi á Búnaðarþingi 1954–1995. Í stjórn Búnaðarfélags Íslands 1991–1995. Í hreppsnefnd Nesjahrepps 1962–1982. Í skólanefnd Bændaskólans á Hvanneyri síðan 1979, formaður um skeið. Í stjórn Áburðarverksmiðjunnar 1985–1993. Í stjórn Byggðastofnunar síðan 1991, formaður 1995. Formaður í fagráði Landgræðslu ríkisins frá 1992.

Landskjörinn alþingismaður (Austurlands) 1979–1987, alþingismaður Austurlands 1987–1999 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Austurlands október–nóvember 1978.

2. varaforseti efri deildar 1991.

Æviágripi síðast breytt 23. september 2019.

Áskriftir