F. í Reykjavík 5. okt. 1923, d. 7. apríl 1994. For.: Guðmundur Gíslason (f. 29. sept. 1900, d. 5. nóv. 1935) gullsmiður og k. h. Indíana Katrín Bjarnadóttir (f. 15. ágúst 1904, d. 10. maí 1989) húsmóðir. Faðir Inga Björns alþm. K. (13. júlí 1946) Brynhildur Hjördís Jóhannsdóttir (f. 22. ágúst 1926, d. 22. júlí 2006) húsmóðir. For.: Jóhann F. Guðmundsson og k. h. Þóra Jónsdóttir. Börn: Helena Þóra (1947), Ingi Björn (1952), Jóhann Halldór (1958).
Samvinnuskólapróf 1944. Verslunarnám 1944—1946 við Skerry’s College, Glasgow, Skotlandi.
Atvinnumaður í knattspyrnu árum saman og þá búsettur í Glasgow, London, Nancy, Mílanó, París og Nice. Heildsali í Reykjavík 1956—1989. Skip. 26. maí 1983 fjármálaráðherra, lausn 16. okt. 1985, skip. 16. okt. 1985 iðnaðarráðherra, lausn 24. mars 1987. Sendiherra Íslands í París 1989—1993.
Forseti Alliance Française í fjölda ára. Ræðismaður Frakka 1962—1989. Stjórnarformaður Tollvörugeymslunnar hf. 1962—1983. Formaður Knattspyrnusambands Íslands 1968—1973. Borgarfulltrúi í Reykjavík 1970—1986, í borgarráði 1972—1983, forseti borgarstjórnar 1982—1983. Formaður byggingarnefndar Sjálfstæðishúss (Valhallar). Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1976—1987 og í framkvæmdastjórn flokksins 1978—1987. Stofnandi Borgaraflokksins og formaður hans 1987—1989. Í bankaráði Útvegsbanka Íslands 1980—1983. Í flugráði 1980—1983. Stjórnarformaður Hafskips hf. 1978—1983.