F. á Ísafirði 18. febr. 1911, d. 19. okt. 1999. For.: Jón Auðunn Jónsson (f. 17. júlí 1878, d. 6. júní 1953) alþm. og k. h. Margrét Guðrún Jónsdóttir (f. 27. apríl 1872, d. 12. mars 1963) húsmóðir. M. (11. ágúst 1936) Hermann Jónsson (f. 23. des. 1912, d. 28. sept. 1969) hæstaréttarlögmaður, fulltrúi tollstjórans í Reykjavík. For.: Jón Hermannsson, mágur Eggerts Pálssonar alþm., og k. h. Ásta Pétursdóttir Thorsteinsson, dótturdóttir Guðmundar Einarssonar prófasts og alþm. Börn: Jón (1939), Einar (1942), Margrét (1949), Árni (1954).
Stúdentspróf MR 1929. Lögfræðipróf HÍ 1935.
Stundaði málflutning á Ísafirði 1935—1936. Lögfræðingur mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur 1940—1960. Borgarstjóri í Reykjavík (ásamt Geir Hallgrímssyni) 19. nóv. 1959—5. okt. 1960. Skip. 10. okt. 1970 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí.
Skip. 1945 í nefnd til að vera stjórnarskrárnefnd til ráðgjafar og aðstoðar, 1946 í endurskoðunarnefnd framfærslulaga og laga um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna, 1954 í endurskoðunarnefnd almannatryggingalaga og 1961 í sifjalaganefnd og átti þar sæti til 1978. Bæjar- og síðar borgarfulltrúi í Reykjavík 1946—1970, forseti bæjarstjórnar, síðar borgarstjórnar 1954—1959 og 1960— 1970. Í útvarpsráði 1975—1978. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1967. Formaður sendinefndar Íslands á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Mexíkóborg 1975.
Alþm. Reykv. 1959—1974 (Sjálfstfl.).
Vþm. Reykv. maí 1947, okt. 1948.
Dóms- og kirkjumálaráðherra 1970—1971.
Síðast breytt 24.02.2005. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur