F. í Ólafsvík 7. des. 1943. For.: Ársæll Jónsson (f. 25. sept. 1918, d. 12. ágúst 1996) frá Arnarstapa, vitavörður og bóndi, síðan hafnarstjóri í Rifi og k. h. Anna Sigrún Jóhannsdóttir (f. 3. júní 1919) húsmóðir. K. (27. maí 1966) Guðbjörg Róbertsdóttir (f. 10. júlí 1944) skólaritari. For.: Róbert E. Duplease og Þorgerður Jóna Oddsdóttir. Börn: Ársæll (1966), Ægir (1968), Kári (1970), Gerður Jóhanna (1976).
Nám í skipasmíði 1961-1965, skipasmíðameistari 1965.
Framkvæmdastjóri Bátastöðvarinnar Knarrar á Akranesi 1974-1991 og 1995-1999.
Bæjarfulltrúi á Akranesi 1974-1982 og 1986-1990. Í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins 1977-1981. Í stjórn HAB 1979-1987. Í miðstjórn Alþýðubandalagsins síðan 1987. Í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1992-1993. Í bankaráði Landsbankans 1995-1998.
Alþm. Vesturl. 1991-1995 (Alþb.) og 1999-2003 (Samf.), alþm. Norðvest. 2003-2007.
Vþm. Vesturl. okt. 1984.
Sjávarútvegsnefnd 1991-1995 og 1999-2007, samgöngunefnd 1991-1995 og 2003-2004, umhverfisnefnd 2000-2003, sérnefnd um stjórnarskrármál 1999 og 2000-2002, kjörbréfanefnd 2003-2007, iðnaðarnefnd 2004-2007, landbúnaðarnefnd 2006-2007.
Síðast breytt 23.05.2007. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur