F. á Ísafirði 21. febr. 1939. For.: Hannibal Valdimarsson (f. 13. jan. 1903, d. 1. sept. 1991) alþm. og ráðherra, bróðir Finnboga R. Valdimarssonar alþm., og k. h. Sólveig Ólafsdóttir (f. 24. febr. 1904) húsmóðir. Bróðir Ólafs Hannibalssonar vþm. K. (26. sept. 1959) Bryndís Schram (f. 9. júlí 1938) framkvæmdastjóri, systir Ellerts B. Schrams alþm. For.: Björgvin Schram og k. h. Aldís Þ. Brynjólfsdóttir. Börn: Aldís (1959), Glúmur (1966), Snæfríður (1968), Kolfinna (1970).
Stúdentspróf MR 1958. MA-próf í hagfræði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi 1963. Framhaldsnám í vinnumarkaðshagfræði við Stokkhólmsháskóla 1963— 1964. Próf í uppeldis- og kennslufræðum HÍ 1965. Framhaldsnám við Harvard-háskóla (Center for European Studies) í Bandaríkjunum 1976—1977.
Kennari í Hagaskóla í Reykjavík 1964—1970. Blaðamaður við Frjálsa þjóð 1964—1967. Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði 1970—1979. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1979—1982. Skip. 8. júlí 1987 fjármálaráðherra, lausn 17. sept. 1988, en gegndi störfum til 28. sept. Skip. 28. sept. 1988 utanríkisráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Skip. 30. apríl 1991 utanríkisráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Sendiherra Íslands í Finnlandi 2002–2005.
Formaður Félags róttækra stúdenta 1960—1961. Formaður Félags háskólamenntaðra kennara 1966—1969. Í nefnd til undirbúnings aðild að EFTA 1968—1970. Bæjarfulltrúi á Ísafirði 1971—1978, forseti bæjarstjórnar 1975— 1976. Í nefnd til að gera tillögur um flutning ríkisstofnana út á land 1972— 1975. Í stjórnarskrárnefnd 1979—1984. Formaður Alþýðuflokksins 1984-1996. Í stjórn SAMAK (Samstarfsnefndar jafnaðarmannaflokka og heildarsamtaka launþega á Norðurlöndum) frá 1985. Formaður ráðherraráðs EFTA 1989, 1992 og 1994.
Alþm. Reykv. 1982—1998 (Alþfl.).
Vþm. Vestf. jan.—febr. 1975 (Frjálsv.) og nóv.—des. 1978, vþm. Reykv. mars—apríl 1980, mars— apríl 1981 og apríl—maí 1982 (Alþfl.).
Fjármálaráðherra 1987—1988, utanríkisráðherra 1988—1995.
Hefur samið bókarkafla og greinar í tímaritum og blöðum um jafnaðarstefnu, efnahagsmál, alþjóðamál, menntamál o. fl.
Ritstjóri: Stúdentablaðið (1960—1961). Frjáls þjóð (1964—1967). Vestri (1971—1975). Alþýðublaðið (1979—1982). Ritröðin: Rökræður um samtíðina (1985).
Síðast breytt 12.12.2012. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur