Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Kristján Þór Júlíusson
2. þm. NA, S, KÞJ
Kristján Þór Júlíusson

   
Kjartan Jóhannsson

Kjartan Jóhannsson

      F. í Reykjavík 19. des. 1939. For.: Jóhann Þorsteinsson (f. 9. maí 1899, d. 16. mars 1976) kennari þar, síðar forstjóri hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði, bróðir Arndísar ömmu Guðna Ágústssonar alþm., og k. h. Astrid, f. Dahl (f. 13. nóv. 1908) hjúkrunarkona. K. (19. júní 1964) Irma Karlsdóttir (f. 26. mars 1943) bankafulltrúi. For.: Alf Eriksson og k. h. Gerda, f. Anderson. Kjörfaðir: Carl-Henrik Andreasson. Dóttir: María (1963).
      Stúdentspróf MR 1959. Próf í byggingarverkfræði við Kungl. Tekniska Högskolan í Stokkhólmi 1963. Nám í rekstrarhagfræði við Stokkhólmsháskóla 1963—1964. MS-próf í rekstrarverkfræði við Illinois Institute of Technology í Chicago 1965, sérnám og rannsóknir við sama skóla og doktorspróf þaðan 1969.
      Stundakennari við Menntaskólann í Reykjavík 1963. Verkfræðingur á Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar og Gunnars B. Guðmundssonar í Reykjavík sumarið 1963 og hjá Vegagerð ríkisins sumurin 1964 og 1965. Rak ráðgjafarþjónustu í rekstrarskipulagningu og áætlanagerð í Reykjavík 1966—1978. Kennari við Háskóla Íslands 1966—1978 og frá 1981, fyrst í verkfræðideild og síðan í viðskiptadeild, dósent 1974—1989. Skip. 1. sept. 1978 sjávarútvegsráðherra, lausn 12. okt. 1979, en gegndi störfum til 15. okt. Skip. 15. okt. 1979 sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra, lausn 4. des. 1979, en gegndi störfum til 8. febr. 1980. Sendiherra hjá EFTA í Genf 1989—1994. Framkvæmdastjóri EFTA síðan 1994. Sendiherra gagnvart ESB í Brüssel 2002–2005.
      Formaður Íslendingafélagsins í Stokkhólmi 1961—1963. Í fyrstu stjórn Sambands íslenskra stúdenta erlendis (SÍSE, síðar SÍNE) 1962—1963, formaður 1963—1964. Formaður Styrktarfélags aldraðra í Hafnarfirði 1976—1979. Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og bæjarráðsmaður 1974—1978. Varaformaður Alþýðuflokksins 1974—1980, formaður flokksins 1980—1984. Formaður útgerðarráðs Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar 1970—1974. Í stjórn Rafmagnsveitna ríkisins 1969—1974 og í stjórn Ísals 1969—1974. Í nefnd um endurskoðun bankakerfisins 1980—1983. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1976, 1982 og 1985. Í stjórn Grænlandssjóðs 1983—1987. Fulltrúi Íslands á þingi Evrópuráðsins 1980—1989 og á fundum þingmannanefndar EFTA 1985—1989, formaður 1985—1986. Í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna 1987—1989. Formaður nefndar um staðgreiðslu skatta 1987, nefndar um húsnæðislán 1988—1989 og nefndar um virðisaukaskatt 1989. Formaður Evrópustefnunefndar 1988—1989.

      Alþm. Reykn. 1978—1989 (Alþfl.).
      Sjávarútvegsráðherra 1978—1979, sjávarútvegs- og viðskiptaráðherra 1979—1980.
      Forseti Nd. 1988— 1989.

      Hefur skrifað bækur, bókarkafla og greinar sem birst hafa í tímaritum og blöðum um verkfræði, skipulagsmál, heilbrigðismál, alþjóðamál, þjóðmál o. fl.

Síðast breytt 14.06.2006. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.