Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Oddný G. Harðardóttir
6. þm. SU, Sf, OH
Oddný G. Harðardóttir

   
Lúðvík Bergvinsson

Lúðvík Bergvinsson

      F. í Kópavogi 29. apríl 1964. For.: Bergvin Oddsson (f. 22. apríl 1943) skipstjóri og k. h. María Friðriksdóttir (f. 1. mars 1943). Bróðursonur Guðmundar Oddssonar vþm. K. Þóra Gunnarsdóttir (f. 16. mars 1965). Börn: Jóhanna Lea (2002), Bjarni Þór (2004).
      Skipstjórnarréttindi á 30 tonna skip 1980. Stúdentspróf Fjölbrautaskólanum á Akranesi 1985. Lögfræðipróf HÍ 1991.
      Fulltrúi bæjarfógeta, síðar sýslumanns, í Vestmannaeyjum 1991-1994, deildarstjóri hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins um sex mánaða skeið 1993-1994. Yfirlögfræðingur í umhverfisráðuneytinu 1994-1995. Í bæjarstjórn Vestmannaeyja 2002-2006.
      Lék með meistaraflokki ÍBV, ÍA, Leifturs og ÍK 1983-1991. Í auðlindanefnd forsætisráðherra 1998-2000. Í Þingvallanefnd 2008-2009.

      Alþm. Suðurl. 1995-2003 (Alþfl., JA., Samf.), alþm. Suðurk. 2003-2009 (Samf.).
      Formaður þingflokks Samfylkingarinnar 2007-2009.
      Menntamálanefnd 1995-1996, landbúnaðarnefnd 1995-1999 og 2003-2005, sérnefnd um stjórnarskrármál 1995-1996, 2007, 2009 (fyrri), sérnefnd um stjórnarskrármál (seinni) 2009, sjávarútvegsnefnd 1996-1999, samgöngunefnd 1999-2003, allsherjarnefnd 1999-2003, efnahags- og viðskiptanefnd 2003-2007, kjörbréfanefnd 2003-2009, félagsmálanefnd 2005-2007, efnahags- og skattanefnd 2007-2009, utanríkismálanefnd 2007-2009, viðskiptanefnd 2009.
      Íslandsdeild VES-þingsins 1999-2003, Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2003-2007.


Síðast breytt 04.05.2009. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.