Magnús Jónsson

Magnús Jónsson

Þingseta

Alþingismaður Eyfirðinga 1953–1959, alþingismaður Norðurlands eystra 1959–1974 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Eyfirðinga nóvember 1951 — janúar 1952 og allt þingið 1952–1953.

Fjármálaráðherra 1965–1971.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Torfmýri í Akrahreppi 7. september 1919, dáinn 13. janúar 1984. Foreldrar: Jón Eyþór Jónasson (fæddur 12. febrúar 1893, dáinn 22. apríl 1982) bóndi þar, síðar á Mel í Staðarhreppi og kona hans Ingibjörg Magnúsdóttir (fædd 22. ágúst 1894, dáin 3. júlí 1979) húsmóðir, föðursystir Heimis Hannessonar varaþingmanns. Bróðir Halldórs Þ. Jónssonar varaþingmanns. Maki (28. október 1950): Ingibjörg Magnúsdóttir (fædd 17. apríl 1929, dáin 1. janúar 2014) húsmóðir. Foreldrar: Magnús Sigurðsson og kona hans Ásdís Sigurðardóttir. Börn: Kristín (1951), Jón (1954).

Stúdentspróf MA 1940. Lögfræðipróf HÍ 1946. Hdl. 1947.

Ritstjóri á Akureyri 1946–1948. Starfsmaður í fjármálaráðuneytinu 1948–1949, fulltrúi þar 1949–1953. Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins 1953–1960. Bankastjóri Búnaðarbankans 1961–1965 og að nýju frá 1971 til æviloka. Skipaður 8. maí 1965 fjármálaráðherra, fór einnig með Hagstofu Íslands, lausn 15. júní 1971, en gegndi störfum til 14. júlí.

Formaður stjórnar Sambands ungra sjálfstæðismanna 1949–1955. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1949–1955 og frá 1961. Skipaður 1949 í nefnd til þess að rannsaka kaup og kjör starfsmanna ríkisins (formaður), skip. 1950 í stjórn skuldaskilasjóðs útvegsmanna, skipaður 1954 og að nýju 1958 í nefnd til þess að athuga leiðir til sparnaðar í ríkisrekstrinum. Formaður íslensku þingmannanefndarinnar á stofnþingi Norðurlandaráðs 1952, sat vegna forfalla á þingi 1953, fulltrúi í ráðinu 1959–1965. Í raforkuráði, síðar orkuráði 1954–1975, formaður þess frá 1962. Í áfengisvarnaráði 1954–1967. Formaður Landssambandsins gegn áfengisbölinu 1955–1957. Kosinn 1955 í atvinnumálanefnd ríkisins og 1956 í milliliðagróðanefnd. Í úthlutunarnefnd atvinnuaukningarfjár 1959–1962, formaður nefndarinnar. Í flugráði 1960–1963. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1961, 1964 og 1972. Skipaður 1961 í endurskoðunarnefnd laga um stofnlán landbúnaðarins, 1962 í nefnd til þess að athuga um stofnun lífeyrissjóðs fyrir bændur. Í stjórn Atvinnubótasjóðs, síðar Atvinnujöfnunarsjóðs 1962–1971, formaður stjórnarinnar. Formaður stjórnar stúdentagarðanna 1963–1965. Í stóriðjunefnd 1963–1965. Kosinn 1964 í áfengismálanefnd, formaður nefndarinnar. Stjórnarformaður framleiðsluráðs kísilgúrverksmiðjunnar 1967–1971 og formaður stjórnar Kísiliðjunnar hf. frá 1971. Í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins 1972–1974. Skipaður 1972 í nefnd til að endurskoða bankakerfið og í endurskoðunarnefnd laga um stofnlánadeild landbúnaðarins o. fl. Átti sæti á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1973. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins 1973–1974.

Alþingismaður Eyfirðinga 1953–1959, alþingismaður Norðurlands eystra 1959–1974 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Eyfirðinga nóvember 1951 — janúar 1952 og allt þingið 1952–1953.

Fjármálaráðherra 1965–1971.

Ritstjóri: Íslendingur (1946–1948). Stefnir (1950–1954). Húseigandinn (1951–1954). Fregnmiðinn (1959).

Æviágripi síðast breytt 10. febrúar 2020.

Áskriftir