Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Ásmundur Einar Daðason
3. þm. NV, F, ÁsmD
Ásmundur Einar Daðason

   
Ásgeir Ásgeirsson

Ásgeir Ásgeirsson

      F. í Kóranesi á Mýrum 13. maí 1894, d. 15. sept. 1972. For.: Ásgeir Eyþórsson (f. 3. júlí 1869, d. 20. jan. 1942) kaupmaður þar, síðar bókhaldari í Reykjavík og k. h. Jensína Björg Matthíasdóttir (f. 1. okt. 1864, d. 25. okt. 1928) húsmóðir. Tengdafaðir Gunnars Thoroddsens alþm. og ráðherra. K. (3. okt. 1917) Dóra Þórhallsdóttir (f. 23. febr. 1893, d. 10. sept. 1964), systir Tryggva Þórhallssonar alþm. og ráðherra. For.: Þórhallur Bjarnarson alþm. og k. h. Valgerður Jónsdóttir, fósturdóttir Tryggva Gunnarssonar alþm. Börn: Þórhallur (1919), Vala (1921), Björg (1925).
      Stúdentspróf MR 1912. Guðfræðipróf HÍ 1915. Framhaldsnám við háskólana í Kaupmannahöfn og Uppsölum 1916—1917. Heiðursdoktor við Manitobaháskóla 18. sept. 1961 og við Edinborgarháskóla 18. febr. 1967.
      Kenndi sund í Vestmannaeyjum sumurin 1914 og 1915. Biskupsritari 1915— 1916. Bankaritari við Landsbankann í Reykjavík 1917—1918. Kennari við Kennaraskólann 1918—1927. Fræðslumálastjóri 1926—1931 og 1934—1938. Skip. 20. ágúst 1931 fjármálaráðherra, lausn 28. maí 1932, en gegndi störfum til 3. júní. Skip. þann dag forsætis- og fjármálaráðherra, lausn 16. nóv. l933, en gegndi störfum til 28. júlí 1934. Bankastjóri Útvegsbankans í Reykjavík 1938—1952. Kjörinn forseti Íslands 29. júní 1952 og tók við embætti 1. ágúst, endurkjörinn án atkvæðagreiðslu 1956, 1960 og 1964 og gegndi forsetaembætti til 1. ágúst 1968, sat á Bessastöðum.
      Kosinn 1925 í bankamálanefnd og 1937 í mþn. í bankamálum. Í stjórn Þingmannasambands Norðurlanda um langt skeið, formaður þess 1930. Í alþingishátíðarnefnd 1926—1930 og í gengisnefnd (formaður) 1927—1935. Skip. 1937 formaður stúdentagarðsnefndar (til 1952). Í gjaldeyriskaupanefnd 1941—1944. Skip. 1941 í viðskiptanefnd við Bandaríkin, 1942 í samninganefnd utanríkisviðskipta, 1945 og að nýju 1948 í viðskiptanefnd við Bretland. Í lýðveldishátíðarnefnd 1943—1944. Skip. 1945 í Hrafnseyrarnefnd, formaður, og átti sæti í henni til æviloka. Fulltrúi í sendinefnd Íslands á fjármálaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Bretton Woods 1944. Fulltrúi Íslands í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1946—1952. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1947 og 1948.

      Alþm. V.-Ísf. 1923—1934 (Framsfl.), 1934—1937 (Ufl.), 1937—1952 (Alþfl.).
      Fjármálaráðherra 1931—1932, forsætis- og fjármálaráðherra 1932—1934.
      Forseti Sþ. 1930—1931. Varaforseti Sþ. 1928—1929.

      Ævisaga: Gylfi Gröndal: Ásgeir Ásgeirsson (1992).
      Ritstjóri: Unga Ísland (1921—1925). Skólablaðið. Mánaðarrit um uppeldi og menntamál (1921—1922). Menntamál. Mánaðarrit um uppeldis- og fræðslumál (1924—1931). Vaka (1927—1929).

Síðast breytt 25.06.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.