Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Óttarr Proppé
11. þm. RS, Bf, ÓP
Óttarr Proppé

   
Ólafur Thors

Ólafur Thors (Ólafur Tryggvason)

      F. í Borgarnesi 19. jan. 1892, d. 31. des. 1964. For.: Thor Philip Axel Jensen (f. 3. des. 1863, d. 12. sept. 1947) kaupmaður þar og k. h. Margrét Þorbjörg Kristjánsdóttir (f. 6. sept. 1867, d. 14. okt. 1945) húsmóðir. Bróðir Thors Thors alþm., faðir Mörtu konu Péturs Benediktssonar alþm. K. (3. des. 1915) Ingibjörg Indriðadóttir Thors (f. 21. ágúst 1894, d. 5. ágúst 1988) húsmóðir. For.: Indriði Einarsson alþm. og k. h. Marta María Pétursdóttir, dóttir Péturs Guðjohnsens alþm. Börn: Thor Jensen (1916), Marta (1918), Thor (1922), Ingibjörg (1924), Margrét Þorbjörg (1929).
      Stúdentspróf MR 1912. Las lögfræði við Hafnarháskóla og Háskóla Íslands, en lauk ekki námi.
      Framkvæmdastjóri togarafélagsins Kveldúlfs hf. í Reykjavík 1914—1939. Skip. 14. nóv. 1932 dómsmálaráðherra, lausn 23. des. 1932. Skip. 17. apríl 1939 atvinnumálaráðherra, lausn 7. nóv. 1941, en gegndi störfum til 18. nóv. Skip. 18. nóv. 1941 atvinnumálaráðherra að nýju, lausn 16. maí 1942. Skip. 16. maí 1942 forsætis- og utanríkisráðherra, lausn 14. nóv. 1942, en gegndi störfum til 16. des. Skip. 21. okt. 1944 forsætis- og utanríkisráðherra, lausn 10. okt. 1946, en gegndi störfum til 4. febr. 1947. Skip. 6. des. 1949 forsætisráðherra og félagsmálaráðherra, lausn 2. mars 1950, en gegndi störfum til 14. mars. Skip. 14. mars 1950 sjávarútvegs- og iðnaðarmálaráðherra, lausn 11. sept. 1953. Skip. sama dag forsætis- og sjávarútvegsmálaráðherra, lausn 27. mars 1956, en gegndi störfum til 24. júlí. Skip. 20. nóv. 1959 forsætisráðherra, lausn 14. nóv. 1963.
      Formaður Félags íslenskra botnvörpuskipaeigenda 1918—1935. Formaður Sjálfstæðisflokksins 1934—1961. Skip. 1925 í gengisnefnd. Kosinn 1926 í alþingishátíðarnefnd, en skoraðist undan að taka sæti í henni. Sat í landsbankanefnd 1928—1938 og í samninganefnd við Norðmenn um kjöttoll 1932. Í dansk-íslensku ráðgjafarnefndinni 1937—1942, orðunefnd 1939—1944. Í skilnaðarnefnd 1944, í bankaráði Landsbankans 1936—1944 og frá 1948 til æviloka. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1947 og 1948.

      Alþm. G.-K. 1926—1959, alþm. Reykn. 1959—1964 (Íhaldsfl., Sjálfstfl.).
      Dómsmálaráðherra 1932, atvinnumálaráðherra 1939—1942, sjávarútvegs- og iðnaðarmálaráðherra 1950— 1953, forsætisráðherra 1942, 1944—1947, 1949—1950, 1953—1956 og 1959—1963.

      Um ævi og störf hans ritaði Matthías Johannessen: Ólafur Thors I—II (1981).

Síðast breytt 16.08.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.