Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Pétur H. Blöndal
4. þm. RS, S, PHB
Pétur H. Blöndal

   
Pálmi Jónsson

Pálmi Jónsson

      F. á Akri í Torfalækjarhreppi 11. nóv. 1929. For.: Jón Pálmason (f. 28. nóv. 1888, d. 1. febr. 1973) alþm. og ráðherra og k. h. Jónína Valgerður Ólafsdóttir (f. 31. mars 1886, d. 3. jan. 1980) húsmóðir. K. (26. okt. 1956) Aðalbjörg Helga Sigfúsdóttir (f. 6. júlí 1936) húsmóðir. For.: Sigfús Hermann Bjarnason og k. h. Jóhanna Erlendsdóttir. Börn: Jón (1957), Jóhanna Erla (1958), Nína Margrét (1970).
      Búfræðipróf Hólum 1948.
      Bóndi á Akri síðan 1953. Skip. landbúnaðarráðherra 8. febr. 1980, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí.
      Formaður Búnaðarfélags Torfalækjarhrepps 1951—1963. Formaður Jörundar, FUS í Austur-Húnavatnssýslu 1963—1964. Í hreppsnefnd Torfalækjarhrepps 1962—1974. Í nýbýlastjórn, síðar landnámsstjórn 1970—1980. Í yfirfasteignamatsnefnd 1972—1978. Í stjórn Rafmagnsveitna ríkisins síðan 1974, formaður 1978—1990. Í Hafnaráði 1984—1987. Í ríkisfjármálanefnd 1984—1987. Í stjórn Byggðastofnunar 1991—1993. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1991. Yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1992—1995. Formaður bankaráðs Búnaðarbanka Íslands frá 1994. Stjórnarformaður Stofnlánadeildar landbúnaðarins frá 1994.

      Alþm. Norðurl. v. 1967—1995 (Sjálfstfl.).
      Landbúnaðarráðherra 1980—1983.
      6. varaforseti Alþingis 1992—1995.


Síðast breytt 17.08.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.