Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Róbert Marshall
6. þm. RS, Bf, RM
Róbert Marshall

   
Rannveig Guðmundsdóttir

Rannveig Guðmundsdóttir

      F. á Ísafirði 15. sept. 1940. For.: Guðmundur Kristján Guðmundsson (f. 15. ágúst 1897, d. 12. jan. 1961) skipstjóri þar og k. h. Sigurjóna Guðmundína Jónasdóttir (f. 14. jan. 1903, d. 9. sept. 1954) húsmóðir. M. (25. sept. 1960) Sverrir Jónsson (f. 9. júlí 1939) tæknifræðingur. For.: Jón H. Guðmundsson og k. h. Sigríður Jóhannesdóttir. Börn: Sigurjóna (1959), Eyjólfur Orri (1965), Jón Einar (1976).
      Landspróf frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar 1956. Námskeið í tölvufræðum í Ósló og Reykjavík 1970-1972.
      Starfsmaður Pósts og síma á Ísafirði 1956-1962. Skrifstofu- og verslunarstörf 1962-1963 og 1967-1968. Starfsmaður tölvudeildar Loftleiða 1972-1976. Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1988-1989. Skip. félagsmálaráðherra 12. nóv. 1994, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl.
      Í bæjarstjórn Kópavogs 1978-1988, forseti bæjarstjórnar 1980-1981, 1982-1983 og 1986-1987. Formaður bæjarráðs Kópavogs 1987-1988. Í félagsmálaráði Kópavogs 1978-1986, formaður 1982-1986. Formaður stjórnar Örva, verndaðs vinnustaðar, 1982-1986. Í stjórn launanefndar sveitarfélaga 1986-1988. Í stjórn Sparisjóðs Kópavogs 1981-1983, 1984-1985 og 1986-1988. Formaður húsnæðismálastjórnar 1987-1989. Í flokksstjórn Alþýðuflokksins síðan 1978, varaformaður 1993-1994. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1989 og 1996. Í sóknarnefnd Digraneskirkju frá 1997. Í stjórn Norræna menningarmálasjóðsins frá 1999. Forseti Norðurlandaráðs síðan 2004.

      Alþm. Reykn. 1989-2003 (Alþfl., JA., Samf.), alþm. Suðvest. 2003-2007 (Samf.).
      Vþm. Reykn. apríl 1988.
      Félagsmálaráðherra 1994-1995.
      1. varaforseti Alþingis 2005-2007.
      Formaður þingflokks Alþýðuflokksins 1993-1994 og 1995-1996, formaður þingflokks jafnaðarmanna 1996-1999 og formaður þingflokks Samfylkingarinnar 1999-2001.
      Utanríkismálanefnd 1991-1995 (varaform. 1991-1993) og 2001-2005, menntamálanefnd 1991-1993, félagsmálanefnd 1991-1999 (form. 1991-1994), efnahags- og viðskiptanefnd 1991-1995, iðnaðarnefnd 1999-2000, umhverfisnefnd 2003-2007.
      Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1991-1992 og 1995-1999, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1991-1994, 1997-1999 og 2001-2007.


Síðast breytt 23.05.2007. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.