F. í Reykjavík 2. okt. 1958. For.: Matthías Á. Mathiesen (f. 6. ágúst 1931) alþm. og ráðherra og k. h. Sigrún Þorgilsdóttir Mathiesen (f. 27. des. 1931) húsmóðir. K. (1. júní 1991) Steinunn Kristín Friðjónsdóttir (f. 27. apríl 1960) flugfreyja. For.: Friðjón Þórðarson alþm. og ráðherra og 1. k. h. Kristín Sigurðardóttir. Dætur: Kristín Unnur (1996), Halla Sigrún (1997), Arna Steinunn (2001).
Stúdentspróf Flensborgarskóla 1978. Embættispróf í dýralækningum frá háskólanum í Edinborg, Skotlandi, 1983. Próf í fisksjúkdómafræði frá Stirling-háskóla, Skotlandi, 1985.
Almenn dýralæknisstörf á Vopnafirði, í Árnessýslu og Gullbringu- og Kjósarsýslu 1983-1985. Héraðsdýralæknir (án fastrar búsetu) jan.-júlí 1984. Dýralæknir fisksjúkdóma 1985-1995. Framkvæmdastjóri Faxalax hf. 1988-1989. Skip. 28. maí 1999 sjávarútvegsráðherra, lausn 23. maí 2003. Skip. 23. maí 2003 sjávarútvegsráðherra, lausn 27. sept. 2005. Skip. 27. sept. 2005 fjármálaráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí. Skip. 24. maí 2007 fjármálaráðherra, lausn 1. febr. 2009.
Oddviti Nemendafélags Flensborgarskóla 1977-1978. Formaður Stefnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, 1986-1988. Varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 1985-1987. Í stjórn ábyrgðadeildar fiskeldislána 1990-1994. Í stjórn Dýralæknafélags Íslands 1986-1987. Í launamálaráði BHMR 1985-1987. Formaður handknattleiksdeildar FH 1988-1990. Í skólanefnd Flensborgarskóla 1990-1999. Í bankaráði Búnaðarbanka Íslands 1994-1998. Í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins 1994-1998. Formaður Dýraverndarráðs 1994-1999.
Alþm. Reykn. 1991-2003, alþm. Suðvest. 2003-2007, alþm. Suðurk. 2007-2009 (Sjálfstfl.).
Sjávarútvegsráðherra 1999-2005, fjármálaráðherra 2005-2009.
Samgöngunefnd 1991-1993 (form. 1991), umhverfisnefnd 1991-1999 og 2009, landbúnaðarnefnd 1991-1999, fjárlaganefnd 1992-1999, utanríkismálanefnd 1998-1999, sérnefnd skv. 32. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis 1995-1997, viðskiptanefnd 2009.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1991-1995, Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 1995-1999.
Síðast breytt 04.05.2009. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur