Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Unnur Brá Konráðsdóttir
4. þm. SU, S, UBK
Unnur Brá Konráðsdóttir

   
Svavar Gestsson

Svavar Gestsson

      F. á Guðnabakka í Stafholtstungum 26. júní 1944. For.: Gestur Zóphónías Sveinsson (f. 3. okt. 1920, d. 29. des. 1980) bóndi á Grund á Fellsströnd, síðast verkamaður í Hafnarfirði og k. h. Guðrún Valdimarsdóttir (f. 28. mars 1924) verkakona í Hafnarfirði. K. 1. (20. júní 1964) Jónína Benediktsdóttir (f. 5. okt. 1943) ritari. Þau skildu. For.: Benedikt Kristinn Franklínsson og k. h. Regína Guðmundsdóttir. K. 2. (29. maí 1993) Guðrún Ágústsdóttir (f. 1. jan. 1947) borgarfulltrúi. For.: Ágúst Bjarnason og k. h. Ragnheiður Eide Bjarnason. Börn Svavars og Jónínu: Svandís (1964), Benedikt (1968), Gestur (1972).
      Stúdentspróf MR 1964. Innritaðist í lögfræði við Háskóla Íslands 1964, nám í Berlín 1967-1968.
      Vann með námi ýmis önnur störf, m.a. við Þjóðviljann, í verkamannavinnu, hjá Samtökum hernámsandstæðinga og hjá Alþýðubandalaginu. Fastur starfsmaður við Þjóðviljann frá 1968, ritstjórnarfulltrúi fyrst, en síðan ritstjóri hans 1971-1978. Skip. 1. sept. 1978 viðskiptaráðherra, lausn 12. okt. 1979, en gegndi störfum til 15. okt. Skip. 8. febr. 1980 félags-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 28. apríl 1983, en gegndi störfum til 26. maí. Skip. 28. sept. 1988 menntamálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Sendiherra Íslands í Svíþjóð 2001–2006. Sendiherra Íslands í Danmörku síðan 2006.
      Í miðstjórn og framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins nær samfellt frá 1968. Formaður Alþýðubandalagsins 1980-1987. Fulltrúi Íslands á fundi þingmannasamtaka EFTA 1985. Í þingmannanefnd EFTA/EES 1995. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1985 og 1992-1993. Í öryggismálanefnd sjómanna 1986. Í stjórnarnefnd Ríkisspítalanna 1987-1988 og 1992-1994. Yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1992-1995. Í stjórn Landsvirkjunar 1995-1997.

      Alþm. Reykv. 1978-1999 (Alþb., Samf.).
      Viðskiptaráðherra 1978-1979, félags-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1980-1983, menntamálaráðherra 1988-1991.
      Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra 1995-1999.

      Hefur ritað fjölda greina um stjórnmál í blöð og tímarit. Út kom eftir hann 1995 bókin Sjónarrönd, jafnaðarstefnan - viðhorf.
      Ritstjóri: Nýja stúdentablaðið (1964). Þjóðviljinn (1971-1978). Var í ritstjórn tímaritsins Réttar á annan áratug.

Síðast breytt 13.06.2006. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.