Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Þór Saari
9. þm. SV, Hr, ÞSa
Þór Saari

   
Þorsteinn Pálsson

Þorsteinn Pálsson

      F. á Selfossi 29. okt. 1947. For.: Páll Sigurðsson (f. 17. okt. 1916) skrifstofumaður á Selfossi og síðar í Reykjavík, hálfbróðursonur Sveins Guðmundssonar alþm., og k. h. Ingigerður Nanna Þorsteinsdóttir (f. 23. maí 1920, d. 5. júní 1982) húsmóðir. K. (1. des. 1973) Ingibjörg Þórunn Rafnar (f. 6. júní 1950) hrl. For.: Jónas G. Rafnar alþm. og k. h. Aðalheiður Bjarnadóttir Rafnar. Börn: Aðalheiður Inga (1974), Páll Rafnar (1977), Þórunn (1979).
      Stúdentspróf VÍ 1968. Lögfræðipróf HÍ 1974. Hdl. 1976.
      Blaðamaður við Morgunblaðið jafnframt námi frá 1970, fastráðinn blaðamaður 1974-1975. Ritstjóri dagblaðsins Vísis frá júlí 1975 til 1979. Framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands 1979-1983. Skip. 16. okt. 1985 fjármálaráðherra, fór einnig með Hagstofu Íslands, jafnframt iðnaðarráðherra frá 24. mars 1987, lausn 28. apríl 1987, en gegndi störfum til 8. júlí. Skip. 8. júlí 1987 forsætisráðherra, lausn 17. sept. 1988, en gegndi störfum til 28. sept. Skip. 30. apríl 1991 sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Skip. 23. apríl 1995 sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 11. maí 1999. Sendiherra í Danmörku 2002–2005.
      Formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta 1969-1970. Í stúdentaráði Háskóla Íslands 1971-1973 og í háskólaráði 1971-1973. Formaður Orators 1972-1973. Í skólanefnd Verslunarskóla Íslands 1972-1977. Í nefnd til að endurskoða stjórnsýslu Háskóla Íslands 1973-1974. Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1975-1977. Í fastanefnd norrænu vinnuveitendasamtakanna 1979-1983. Í kauplagsnefnd 1979-1983. Í kjararannsóknarnefnd og verðlagsráði 1979-1983. Skip. 1980 í nefnd til að endurskoða lög og reglugerðir um réttarstöðu og aðbúnað farandverkafólks, 1983 formaður nefndar til að endurskoða lög um Seðlabanka Íslands og viðskiptabankana (bankalaganefnd), sama ár í nefnd til að endurskoða lög um Framleiðsluráð landbúnaðarins og í nefnd til að gera tillögur um breytingar á skattalögum í því skyni að örva fjárfestingu í atvinnulífinu. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1981. Formaður Sjálfstæðisflokksins 1983-1991. Í Þingvallanefnd 1984-1988. Í Norðurlandaráði 1988-1991. Í stjórnarskrárnefnd frá 2005.

      Alþm. Suðurl. 1983-1999 (Sjálfstfl.).
      Fjármálaráðherra 1985-1987, forsætisráðherra 1987-1988, sjávarútvegs-, dóms- og kirkjumálaráðherra 1991-1999.

      Ritstjóri: Vísir (1975-1979).

Síðast breytt 14.06.2006. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur

Þingsetutímabil og embætti á Alþingi og í ríkisstjórnum.
Nefndasetur.
 
Þingstörf




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875


Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.