Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Birgitta Jónsdóttir
12. þm. SV, P, BirgJ
Birgitta Jónsdóttir

   
Birgir Ísleifur Gunnarsson

Birgir Ísleifur Gunnarsson (Birgir Ísleifur)

      F. í Reykjavík 19. júlí 1936. For.: Gunnar Espólín Benediktsson (f. 30. júní 1891, d. 13. febr. 1955) hæstaréttarlögmaður þar og k. h. Jórunn Ísleifsdóttir (f. 2. okt. 1910) húsmóðir. K. (6. okt. 1956) Sonja Backman (f. 26. ágúst 1938) ritari í Skóla Ísaks Jónssonar. For.: Ingimar Karlsson og Alda Carlson. Börn: Björg Jóna (1957), Gunnar Jóhann (1960), Ingunn Mjöll (1970), Lilja Dögg (1970).
      Stúdentspróf MR 1955. Lögfræðipróf HÍ 1961. Hdl. 1962. Hrl. 1967.
      Framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna 1961—1963. Rak eigin lögmannsstofu í Reykjavík 1963—l972. Borgarstjóri í Reykjavík frá desember 1972 til maí 1978. Ýmis störf að stjórnmálum frá maí 1978 til desember 1979. Skip. 8. júlí 1987 menntamálaráðherra, lausn 17. sept. 1988, en gegndi störfum til 28. sept. Bankastjóri Seðlabanka Íslands 1991-2005.
      Formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta 1956—1957. Formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands 1957—1958, fulltrúi stúdenta í háskólaráði 1958—1959. Formaður Heimdallar FUS 1959—1962. Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1961—l969, formaður 1967—1969. Borgarfulltrúi í Reykjavík 1962—l982. Í stjórn Landsvirkjunar 1965—1991. Formaður Stúdentafélags Reykjavíkur 1966—1967. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1973—1991. Formaður framkvæmdastjórnar Sjálfstæðisflokksins 1978—1987. Formaður stóriðjunefndar 1983—1987. Í flugráði 1984—1987. Formaður nefndar til að undirbúa löggjöf og áætlun um flugvelli 1984—1986. Formaður nefndar er samdi frumvarp til laga um framhaldsskóla 1985—1987. Formaður sendinefndar Alþingis hjá Þingmannasamtökum Atlantshafsbandalagsins 1983—1987. Á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1980 og 1988. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1989—1991. Formaður þróunarnefndar Háskóla Íslands 1992—1994, skipaður af menntamálaráðherra.

      Alþm. Reykv. 1979—1991 (Sjálfstfl.).
      Menntamálaráðherra 1987—1988.
      2. varaforseti Nd. 1983— 1987.

      Ritstjóri: Stefnir (1963—1965). Fjármálatíðindi (frá 1994).

Síðast breytt 13.06.2006. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.