F. í Reykjavík 4. okt. 1965. For.: Gunnar H. Eyjólfsson (f. 24. febr. 1926) leikari og k. h. Katrín Arason (f. 12. des. 1926) deildarstjóri hjá Flugmálastjórn. M. (18. júlí 1987) Kristján Arason (f. 23. júlí 1961) viðskiptafræðingur. For.: Ari Magnús Kristjánsson og k. h. Hulda Júlíana Sigurðardóttir. Börn: Gunnar Ari (1995), Gísli Þorgeir (1999), Katrín Erla (2003).
Stúdentspróf MS 1985. Lögfræðipróf HÍ 1993.
Lögfræðingur hjá Lögmönnum Höfðabakka 1993-1994. Yfirmaður samfélags- og dægurmáladeildar Ríkisútvarpsins 1997-1999. Skip. 31. desember 2003 menntamálaráðherra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí. Skip. 24. maí 2007 menntamálaráðherra, lausn 1. febr. 2009.
Í stjórn Orators, félags laganema við HÍ, 1989-1990. Í stjórn Stefnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, 1993-1994. Varaformaður stjórnar fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði 1993-1994. Í stjórn Vinnumálastofnunar 1997. Í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna 1997-2001. Í nefnd á vegum menntamálaráðuneytis um fjölmiðla og konur 1998-2000. Ýmis störf á vegum íþróttahreyfingarinnar. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins síðan 2005. Í Þingvallanefnd síðan 2009.