Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Ögmundur Jónasson
8. þm. SV, Vg, ÖJ
Ögmundur Jónasson

   
Þuríður Backman

Þuríður Backman

      F. í Reykjavík 8. jan. 1948. For.: Ernst Fridolf Backman (f. 21. okt. 1920) íþróttakennari og Ragnheiður Jónsdóttir (f. 10. apríl 1928) sjúkraliði. M. (6. jan. 1973) Björn Kristleifsson (f. 1. des. 1946) arkitekt. For.: Kristleifur Jónsson og Sigríður Jensdóttir. Börn: Ragnheiður (1966), Kristleifur (1973), Þorbjörn (1978).
      Próf frá Hjúkrunarskóla Íslands 1973. Framhaldsnám í hand- og lyflækningahjúkrun 1983. Diplóma frá Norræna heilbrigðisháskólanum 1992.
      Hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á Borgarspítalanum 1973-1980. Hjúkrunarfræðingur við Heilsuverndarstöðina í Reykjavík og Heilsugæslustöðina Asparfelli 1980-1982 og við sjúkrahúsið á Egilsstöðum 1983-1985. Hjúkrunarforstjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum 1985-1988 og hjúkrunarfræðingur þar 1988-1990. Fræðslufulltrúi Krabbameinsfélags Íslands 1990-1996. Hjúkrunarfræðingur við Heilsugæslustöðina á Egilsstöðum / Heilbrigðisstofnun Austurlands 1994-1999.
      Formaður Krabbameinsfélags Héraðssvæðis 1986-2000. Í Ferðamálaráði 1989-1993. Í bæjarstjórn Egilsstaða 1990-1998, forseti 1994-1998. Varamaður í tryggingaráði 1995-1999. Í stjórn Listskreytingasjóðs 1997-1999, í tóbaksvarnanefnd 1997-1999, stjórn Krabbameinsfélags Íslands 1997-1999 og í verkefnisstjórn Staðardagskrár 21 1998-2000. Í Þingvallanefnd 2010, 2011-.

      Alþm. Austurl. 1999-2003, alþm. Norðaust. 2003-2013 (Vg.).
      Vþm. Austurl. mars 1992, okt.-nóv. 1993, nóv. 1994, nóv. 1995, okt. 1996, okt.-nóv. 1997 (Alþb.), nóv. 1998 (Óh.).
      5. varaforseti Alþingis 2003-2007, 2. varaforseti Alþingis síðan 2007.
      Formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs 2011.
      Heilbrigðis- og trygginganefnd 1999-2007, landbúnaðarnefnd 1999-2003, heilbrigðisnefnd 2007-2011 (form. 2009-2011), félags- og tryggingamálanefnd 2009, menntamálanefnd 2009 og 2011, fjárlaganefnd 2009-2011, umhverfisnefnd 2010, þingskapanefnd 2011-2013, allsherjar- og menntamálanefnd 2011-2012, umhverfis- og samgöngunefnd 2011-2012, velferðarnefnd 2012-2013, utanríkismálanefnd 2013.
      Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2007-2013 (form. 2009-2013), Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2011-2013 (form. 2011-2013).


Síðast breytt 29.04.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)


Hagsmunaskráning




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.