F. í Hamborg 10. mars 1977. For.: Ágúst Einarsson (f. 11. jan. 1952) alþm. og prófessor, sonur Einars Sigurðssonar vþm., og k. h. Kolbrún Ingólfsdóttir (f. 10. mars 1943) sagnfræðingur og meinatæknir. K. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (f. 23. maí 1978) lögfræðingur. For.: Gunnlaugur A. Jónsson og k. h. Guðrún Helga Brynleifsdóttir. Dætur: Elísabet Una (2002), Kristrún (2005).
Stúdentspróf MR 1997. Lögfræðipróf HÍ 2003. BA-próf í hagfræði HÍ 2003.
Stundaði ýmis störf sumrin 1998-2001, m.a. sem blaðamaður á Degi, hjá fjármálaráðuneytinu, ríkisskattstjóra og við nýsköpunarverkefni um reglur um persónuvernd í íslenskum og alþjóðlegum rétti fyrir Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.
Í stjórn Röskvu, samtaka félagshyggjufólks í HÍ, og stjórn ELSA-Ísland, samtaka evrópskra laganema á Íslandi, 1999-2000. Í framkvæmdastjórn Sambands ungra jafnaðarmanna 1999-2000. Í stjórn Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu, 2000-2004, þar af varaformaður 2002-2004. Varaformaður Ungra jafnaðarmanna 2000-2001, formaður 2001-2003. Í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík síðan 2001. Varaformaður Samfylkingarinnar 2005-2009.
Alþm. Reykv. s. 2003-2009 (Samf.).
Allsherjarnefnd 2003-2009, heilbrigðis- og trygginganefnd 2003-2006 og 2007, sérnefnd um stjórnarskrármál 2004-2007 og 2009 (fyrri), efnahags- og viðskiptanefnd 2006-2007, heilbrigðisnefnd 2007-2009, viðskiptanefnd 2007-2009 (form.).
Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2007-2009.