Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Árni Þór Sigurðsson
8. þm. RN, Vg, ÁÞS
Árni Þór Sigurðsson

   
Árni Magnússon

Árni Magnússon

      F. í Reykjavík 4. júní 1965. For.: Magnús Bjarnfreðsson (f. 9. febr. 1934), bróðir Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur alþm., starfsmaður Happdrættis Háskóla Íslands og Guðrún Árnadóttir (f. 15. maí 1937) bókavörður. K. (28. júní 1997) Edda B. Hákonardóttir (f. 25. júní 1960) verslunarmaður. For.: Eiríkur Hákon Sumarliðason og Sigurbjörg Einarsdóttir. Börn: Sara Dögg (1994) og Árni Páll (1996). Dóttir Árna og Þuríðar Guðrúnar Aradóttur: Guðrún Magnea (1983). Stjúpsynir, synir Eddu: Björgvin (1981) og Hans Þór (1983).
      Samvinnuskólapróf 1983. Ýmis námskeið í rekstrarfræði, stjórnun og stjórnmálafræði frá HÍ og HA.
      Ýmis skrifstofustörf 1983-1987. Frétta-, blaða- og dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi, á blöðum og tímaritum 1987-1994. Kosningastjóri Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi fyrir alþingiskosningar 1995. Aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1995-1999, aðstoðarmaður utanríkisráðherra 1999-2001. Framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins 2001-2003. Skip. 23. maí 2003 félagsmálaráðherra, lausn 7. mars 2006.
      Í stjórn markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytis og Landsvirkjunar 1995-1999. Formaður stjórnar Átaks til atvinnusköpunar 1995-1999. Varamaður í stjórn Norræna fjárfestingarbankans 1995-2000. Formaður nefndar um eflingu kvikmyndagerðar og nefndar um eflingu tónlistariðnaðar 1996-1999. Formaður stjórnar orkuleitarátaks 1997-1999. Formaður stjórnar kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðurlandi 1998-2001, bæjarfulltrúi í Hveragerði 1998-2003, í héraðsnefnd Árnesinga 1998-2003, formaður stjórnar Heilsugæslunnar í Hveragerði 1998-2003. Formaður stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar 1999-2003. Fulltrúi á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1999 og 2000. Formaður bæjarráðs Hveragerðis, formaður stjórnar Hitaveitu Hveragerðis og formaður stjórnar Listasafns Árnesinga 2002-2003. Varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og formaður EES-nefndar sambandsins 2002-2003.

      Alþm. Reykv. n. 2003-2006 (Framsfl.).
      Félagsmálaráðherra 2003-2006.


Síðast breytt 07.03.2006. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.