Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Birgitta Jónsdóttir
9. þm. RS, Hr, BirgJ
Birgitta Jónsdóttir

   
Birgir Ármannsson

Birgir Ármannsson

      F. í Reykjavík 12. júní 1968. For.: Ármann Sveinsson (f. 14. apríl 1946, d. 10. nóv. 1968) laganemi og k. h. Helga Kjaran (f. 20. maí 1947) grunnskólakennari, dóttir Birgis Kjarans alþm. K. Ragnhildur Hjördís Lövdahl (f. 1. maí 1971) starfsmaður alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra. For.: Einar Lövdahl og k. h. Inga Dóra Gústafsdóttir. Dætur: Erna (2003), Helga Kjaran (2005).
      Stúdentspróf MR 1988. Embættispróf í lögfræði HÍ 1996. Hdl. 1999. Framhaldsnám við King's College, London, 1999-2000.
      Blaðamaður á Morgunblaðinu 1988-1994. Starfsmaður Verslunarráðs Íslands 1995-2003, lögfræðingur ráðsins 1996-1998, skrifstofustjóri 1998-1999 og aðstoðarframkvæmdastjóri 2000-2003.
      Formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna, 1989-1991. Í stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, og í Stúdentaráði Háskóla Íslands 1989-1990. Í umhverfismálaráði Reykjavíkur og skólanefnd Menntaskólans í Reykjavík 1990-1994. Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1991-1993 og 1995-1997. Í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 1989-1991 og Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, 1998-2000. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1993-2003. Í skólanefnd Fjölbrautaskólans við Ármúla 1994-1999. Í stjórn Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, 1993-2000, formaður 1998-2000. Í stjórn ICEPRO, nefndar um rafræn viðskipti, 1998-1999 og frá 2002. Í stjórn EAN á Íslandi 2003-2004. Í stjórn Fjárfestingarstofu 2003-2005. Í stjórnarskrárnefnd frá 2005.

      Alþm. Reykv. s. síðan 2003 (Sjálfstfl.).
      6. varaforseti Alþingis 2003-2005. 3. varaforseti Alþingis 2005-2007.
      Allsherjarnefnd 2003- (form. 2007-2009), efnahags- og viðskiptanefnd 2003-2007, kjörbréfanefnd 2005-, sérnefnd um stjórnarskrármál 2005-2007 (form. 2006-2007), 2009 (fyrri), 2009 (seinni), viðskiptanefnd 2007-2009, umhverfisnefnd 2009-.
      Íslandsdeild Vestnorræna þingmannaráðsins 2003-2005 (form.), Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2005-2007 (form.), Íslandsdeild VES-þingsins 2007-.


Síðast breytt 02.06.2009. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur



Símanúmer
Á lögheimili: 552-4001
Farsími: 899-2242

Þingstörf
11. þm. Reykv. s., Sjálfstfl., BÁ


Nefndasetur:
Allsherjarnefnd
Kjörbréfanefnd
Umhverfisnefnd
Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)


Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875


Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.