Bjarni Benediktsson

Bjarni Benediktsson
  • Embætti: Forsætisráðherra
  • Ráðuneyti:Forsætisráðuneytið
  • Kjördæmi: Suðvesturkjördæmi
  • Þingflokkur: Sjálfstæðisflokkur
  • 565-6009

Þingseta

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan 2003 (Sjálfstæðisflokkur).

Fjármála- og efnahagsráðherra 2013–2017. Forsætisráðherra 2017. Fjármála- og efnahagsráðherra 2017–2021 og 2021–2023. Utanríkisráðherra 2023–2024. Forsætisráðherra síðan 2024.

Æviágrip

Fæddur í Reykjavík 26. janúar 1970. Foreldrar: Benedikt Sveinsson (fæddur 31. júlí 1938) hæstaréttarlögmaður, sonarsonur Benedikts Sveinssonar alþingismanns, og Guðríður Jónsdóttir (fædd 19. september 1938) húsmóðir. Maki (22. júlí 1995): Þóra Margrét Baldvinsdóttir (fædd 1. mars 1971). Foreldrar: Baldvin Jónsson og Margrét S. Björnsdóttir. Börn: Margrét (1991), Benedikt (1998), Helga Þóra (2004), Guðríður Lína (2011).

Stúdentspróf MR 1989. Lögfræðipróf HÍ 1995. Nám í þýsku og lögfræði í Þýskalandi 1995–1996. LL.M.-gráða (Master of Laws) frá University of Miami School of Law í Bandaríkjunum 1997. Hdl. 1998. Löggiltur verðbréfamiðlari 1998.

Fulltrúi hjá sýslumanninum í Keflavík 1995. Lögfræðingur hjá Eimskip 1997–1999. Lögmaður með eigin rekstur á Lex lögmannsstofu 1999–2003. Fjármála- og efnahagsráðherra 23. maí 2013 til 11. janúar 2017. Forsætisráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017. Fjármála- og efnahagsráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021 og 28. nóvember 2021 til 14. október 2023. Utanríkisráðherra 14. október 2023 til 9. apríl 2024. Forsætisráðherra síðan 9. apríl 2024.

Í stjórn Hugins, félags ungra Sjálfstæðismanna í Garðabæ, 1991–1993, formaður 1993. Framkvæmdastjóri lögfræðiaðstoðar Orators, félags laganema, 1994–1995. Í stjórn Heilsugæslu Garðabæjar 1998–2002. Í skipulagsnefnd Garðabæjar 2002–2010. Varaformaður flugráðs 2003–2007. Formaður knattspyrnudeildar Ungmennafélagsins Stjörnunnar í Garðabæ 2003–2005. Í stjórnarskrárnefnd 2005–2007. Formaður Sjálfstæðisflokksins síðan 2009.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan 2003 (Sjálfstæðisflokkur).

Fjármála- og efnahagsráðherra 2013–2017. Forsætisráðherra 2017. Fjármála- og efnahagsráðherra 2017–2021 og 2021–2023. Utanríkisráðherra 2023–2024. Forsætisráðherra síðan 2024.

Allsherjarnefnd 2003–2007 (formaður), fjárlaganefnd 2003–2007, iðnaðarnefnd 2003–2004 og 2007, sérnefnd um stjórnarskrármál 2003–2006, 2007–2008 og 2009 (fyrri), heilbrigðis- og trygginganefnd 2004–2005, utanríkismálanefnd 2005–2013 (formaður 2007–2009), kjörbréfanefnd 2005–2009, efnahags- og skattanefnd 2007–2009, starfshópur utanríkismálanefndar um Evrópumál 2009–2013.

Íslandsdeild VES-þingsins 2003–2005 (formaður), Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2005–2009, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009–2012, þingmannanefnd Íslands og ESB 2010–2011, 2012–2013.

Æviágripi síðast breytt 10. apríl 2024.

Áskriftir