Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Björt Ólafsdóttir
6. þm. RN, Bf, BjÓ
Björt Ólafsdóttir

   
Björgvin G. Sigurðsson

Björgvin G. Sigurðsson

      F. í Reykjavík 30. okt. 1970. For.: Sigurður Björgvinsson (f. 12. maí 1945) vélfræðingur og Jenný Jóhannsdóttir (f. 3. ágúst 1946) kennari. M. María Ragna Lúðvígsdóttir (f. 11. jan. 1970) tölvunarfræðingur. For.: Lúðvíg Alfreð Halldórsson og Guðrún Ragna Kristjánsdóttir. Dætur: Guðrún Ragna (2003), Elísabet (2005). Stjúpbörn, börn Maríu Rögnu: Stefanía Ýrr (1990), Lúðvíg Árni (1992), Karólína (1994), Þóra Andrea (1995).
      Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Suðurlands 1993. BA-próf í sögu og heimspeki HÍ 1997.
      Blaðamaður á Vikublaðinu 1996-1997. Ritstjóri Stúdentablaðsins 1997-1998. Framkvæmdastjóri Reykvískrar útgáfu 1999. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og þingflokks Samfylkingarinnar 1999-2002. Kosningastjóri Samfylkingarinnar á Suðurlandi og í Árborg 1999 og 2002. Viðskiptaráðherra 24. maí 2007 til 1. febr. 2009. Samstarfsráðherra Norðurlanda 10. júní 2008 til 1. febr. 2009.
      Í Þingvallanefnd síðan 2009.

      Alþm. Suðurk. 2003-2013 (Samf.).
      Vþm. Suðurl. nóv. 1999, okt.-nóv. 2000, okt. 2001 og jan.-mars 2003 (Samf.).
      Viðskiptaráðherra 2007-2009, samstarfsráðherra Norðurlanda 2008-2009.
      Formaður þingflokks Samfylkingarinnar 2009-2010.
      Iðnaðarnefnd 2003-2004, menntamálanefnd 2003-2007, samgöngunefnd 2004-2005, 2009 og 2009-2010, allsherjarnefnd 2005-2007, efnahags- og skattanefnd 2009 (form.), fjárlaganefnd 2009 og 2010-2013, utanríkismálanefnd 2010-2011, allsherjar- og menntamálanefnd 2011-2013 (form.).
      Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál 2005-2007, Íslandsdeild NATO-þingsins 2009-2013 (form.).


Síðast breytt 15.05.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)


Hagsmunaskráning




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.